Foreldrar stjarnanna rifust eftir tap Frakka Fjölskyldur Pauls Pogba og Kylians Mbappé fengu að heyra það í stúkunni á leik Frakklands og Sviss í Búkarest á mánudagskvöld, þegar Frakkar féllu úr leik á EM. Móðir liðsfélaga þeirra reifst og skammaðist. 30.6.2021 08:34
Öskur Grikkjans í nóttinni og einvígið jafnt Giannis Antetokounmpo veinaði af sársauka áður en hann var studdur af velli í tapi Milwaukee Bucks gegn Atlanta Hawks, 110-88, í úrslitum austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. 30.6.2021 07:31
NBA dagsins: Aðeins einn afrekað það sama og George þegar hann gaf Clippers líflínu Það veltur að miklu leyti á Paul George hvort að LA Clippers kemst í úrslit NBA-deildarinnar í körfubolta. Hann stóð undir væntingum í nótt þegar Clippers unnu Phoenix Suns 116-102. 29.6.2021 15:00
De Boer hættur með hollenska landsliðið eftir meðgöngutíma Hollenska knattspyrnusambandið var ekki lengi að slíta samstarfinu við Frank de Boer eftir að Holland féll úr leik á Evrópumótinu. 29.6.2021 14:50
Alfreð valdi sautján í ólympíuhóp en saknar öflugs tvíeykis Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, hefur valið 17 leikmenn til æfinga og undirbúnings fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í Tókýó í næsta mánuði. 29.6.2021 14:31
Bjarni Ben hvatti íþróttafélög til að horfa á ný til Balkanskaga Hin magnaða íþróttaþjóð sem Króatar eru var til umræðu í þættinum EM í dag á Stöð 2 Sport í gærkvöld þar sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og þingmaðurinn Willum Þór Þórsson voru gestir. Bjarni kallaði eftir því að íslensk íþróttafélög horfðu meira til Balkanskaga eftir leikmönnum. 29.6.2021 14:00
Brynjar Ingi seldur til Ítalíu Brynjar Ingi Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur verið seldur frá KA til ítalska félagsins Lecce. Hann gerir samning til þriggja ára við félagið. 29.6.2021 13:41
Sara og Hörður best en Styrmir og Elísabeth efnilegust Leikmenn ársins í Dominos-deildunum í körfubolta koma ekki úr Íslandsmeistaraliðunum heldur úr karlaliði Keflavíkur og kvennaliði Hauka. 29.6.2021 13:00
Vieira að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina Patrick Vieira verður næsti knattspyrnustjóri Crystal Palace samkvæmt heimildum miðla á borð við The Athletic og Sky Sports. 29.6.2021 11:50
Smit heillaði sérfræðinganna: „Versti staður fyrir markmann að fá boltann“ Hollenski markvörðurinn Guy Smit átti stóran þátt í því að Víkingur tapaði í fyrsta sinn í sumar, með frábærum markvörslum fyrir Leiknismenn í Pepsi Max-deildinni í gærkvöld. 29.6.2021 10:30