Fimm skiptingar í ensku úrvalsdeildinni Félögin í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hafa samþykkt að fimm skiptingar verði leyfðar hjá hvoru liði í leikjum í deildinni á næstu leiktíð. 31.3.2022 14:28
Vill viðræður um þjóðarhöll á Selfossi Ný þjóðarhöll fyrir inniíþróttir gæti risið á Selfossi ef hugmyndir formanns bæjarráðs Árborgar ganga eftir. Hann kallar eftir samtali við ríkisstjórnina í ljósi „vandræðagangs í viðræðum ríkisstjórnarinnar og Reykjavíkurborgar.“ 31.3.2022 14:01
Katrín Tanja í kosningabaráttu Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur ákveðið að leggja sitt lóð á vogarskálina fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningunum í vor. 31.3.2022 13:46
Hægt að styðja strákana okkar á stórmót í fyrsta sinn í þrjú ár Íslenskir aðdáendur karlalandsliðsins í handbolta fá afar langþráð tækifæri í apríl til að berja strákana okkar augum þegar þeir mæta Austurríki í leik upp á líf og dauða, eða réttara sagt sæti á HM í janúar. 31.3.2022 11:31
Búið spil hjá besta leikmanni Fram Framarar munu þurfa að spjara sig án Færeyingsins Vilhelms Poulsen það sem eftir lifir leiktíðar í Olís-deild karla í handbolta. 31.3.2022 11:21
Þorgeir Bjarki snýr aftur á Nesið Handboltamaðurinn Þorgeir Bjarki Davíðsson, leikmaður Vals, mun leika með Gróttu frá og með næstu leiktíð en hann hefur skrifað undir samning til tveggja ára við félagið. 30.3.2022 15:01
„Ekkert af þessum liðum hefur eitthvað að sækja upp í Olís-deild“ Sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni hafa litla eða enga trú á því að liðið eða liðin sem komast upp í Olís-deild kvenna í handbolta í vor eigi eitthvað erindi í deildina. 30.3.2022 13:01
Karólína lokuð inni í viku vegna smits: „Þetta er hræðileg tímasetning“ Reglur í Þýskalandi og hjá Bayern München varðandi kórónuveirusmit koma í veg fyrir að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir geti spilað stórleikinn gegn PSG í París í kvöld, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. 30.3.2022 11:31
Ung knattspyrnukona sakar Barcelona um illa meðferð Giovana Queiroz, 18 ára brasilísk landsliðskona í fótbolta, hefur sakað spænska félagið Barcelona um hrottafengna meðferð en hún er leikmaður félagsins. 30.3.2022 11:00
Tiger lék á Augusta og gæti snúið aftur á Masters í næstu viku Það ríkir spenna og eftirvænting í golfheiminum eftir að það sást til Tigers Woods klára 18 holur á Augusta-vellinum þar sem Masters risamótið hefst í næstu viku. 30.3.2022 09:31