Stelpurnar okkar ná nýjum hæðum á heimslista Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er það 14. besta af öllum í heiminum samkvæmt nýjasta styrkleikalista FIFA. 5.8.2022 08:31
Lýsa tapinu á Íslandi sem algjöru hneyksli „Það eina sem er öruggt í lífinu er dauðinn, skattar og að pólsk lið tapi 1-0 á Íslandi,“ skrifar Jakub Seweryn, blaðamaður Sport.pl. Hann er einn af mörgum pólskum skríbentum sem hneykslast hafa á tapi pólsku meistaranna í Lech Poznan gegn Íslandsmeisturum Víkings í gærkvöld. 5.8.2022 07:31
Óskar „heyrði einu sinni í“ Norrköping en tekur ekki við liðinu Nú virðist útséð um að Óskar Hrafn Þorvaldsson verði næsti þjálfari sænska knattspyrnuliðsins Norrköping. Hann gaf enda lítið fyrir orðróminn, aðspurður um hann í gær. 4.8.2022 15:30
Meiðsli Martials auka á hausverk nýja stjórans fyrir fyrsta leik Erik ten Hag þarf að finna út úr því hver á að leiða sóknarlínu Manchester United á sunnudag, í fyrsta leik tímabilsins, og nú er ljóst að það verður ekki Frakkinn Anthony Martial. 4.8.2022 14:31
„Þá rekja þeir okkur upp eins og illa prjónaða peysu“ „Það getur enginn beðið eftir þessum leik,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, í aðdraganda stórleiksins við Istanbúl Basaksehir í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. 4.8.2022 14:00
Skemmt sushi gæti eyðilagt EM fyrir Antoni Eftir frábæra frammistöðu á HM fyrr í sumar er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee nú að undirbúa sig fyrir Evrópumótið í sundi sem hefst í Róm eftir viku. Skæð matareitrun hefur hins vegar truflað undirbúning hans. 4.8.2022 13:03
Upphitun fyrir elleftu umferð: „Þetta var svolítið dýrt þarna fyrir norðan“ Helena Ólafsdóttir hitaði upp fyrir 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta með EM-förunum Söndru Sigurðardóttur og Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur. 4.8.2022 12:01
Frábær Gandri, FH í klandri og Þórarinn á óþarfa flandri Portúgalinn Tiago Fernandes og Guðmundur Andri Tryggvason skoruðu tvennu hvor um sig í gærkvöld þegar tveir leikir fóru fram í Bestu deildinni í fótbolta. Öll mörkin úr leikjunum má nú sjá hér á Vísi. 4.8.2022 08:31
Öllum leikmönnum skylt að læra um samþykki fyrir kynlífi Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa kynnt nýjar reglur til að sporna gegn því að leikmenn og þjálfarar liðanna í deildinni brjóti af sér kynferðislega. 4.8.2022 07:33
Höfðinu styttri en lögreglan leysti málið Þau sem fylgst hafa með heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum hafa ef til vill orðið vör við stórt, gult lukkudýr, Stórfót, sem glatt hefur bæði áhorfendur og keppendur. Höfði hans var stolið á mánudaginn. 22.7.2022 16:45