Stoltir af að fá Daníel til SönderjyskE og hafa góða reynslu af Íslendingum Landsliðsmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er genginn í raðir danska knattspyrnufélagsins SönderjyskE. Þessi 27 ára gamli, örvfætti miðvörður skrifaði undir samning sem gildir til fjögurra ára. 26.6.2023 15:44
Daníel sá þriðji sem fær ekki að fara á EM Tvær breytingar hafa orðið á leikmannahópi Íslands sem í næstu viku hefur keppni á Evrópumóti U19-landsliða karla, á Möltu. 26.6.2023 15:18
Eyþór hálsbrotnaði við keppni í Ólafsvík Eyþór Reynisson, einn fremsti og reynslumesti vélhjólaíþróttamaður landsins, hálsbrotnaði við keppni í fjörunni á milli Ólafsvíkur og Rifs um helgina. 26.6.2023 11:36
„Ætluðu að pressa allt þetta mót og eru í formi til þess“ Nýliðar FH halda áfram blússandi siglingu í Bestu deild kvenna í fótbolta eftir að hafa víðast hvar verið spáð falli úr deildinni áður en leiktíðin hófst. Liðið fékk verðskuldað hrós í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld. 23.6.2023 17:00
Vill pakkfullan Kórinn í kvöld: „Alltaf eins og bikarúrslitaleikur“ „Það yrðu vonbrigði ef að Kórinn yrði ekki pakkfullur í kvöld, og helst að þeir sem yrðu seinir kæmust ekki inn. Þannig ætti það að vera í föstudagsleik á milli þessara liða,“ segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, fyrir grannaslaginn við HK í Bestu deildinni í kvöld. 23.6.2023 14:46
Stórir viðburðir frá síðasta sigri: „Risahrós á Selfoss“ Það er óhætt að segja að margt hafi gerst á milli sigranna tveggja sem Selfoss hefur unnið í Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar, eins og bent var á í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld. 23.6.2023 13:59
KSÍ sækir um að halda ársþing UEFA Stjórn knattspyrnusambands Íslands hefur ákveðið að sækja um að halda ársþing knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, árið 2027. Búast má við miklum áhuga á þinginu það ár. 23.6.2023 13:30
Diljá sló í gegn í Besta þættinum: „Þetta er ógeðslega vont“ Eurovision-stjarnan Diljá Pétursdóttir var senuþjófur þegar HK og Breiðablik mættust í Besta þættinum, til að hita upp fyrir nágrannaslag liðanna sem fram fer í Kórnum í kvöld, í Bestu deild karla. Þáttinn má nú sjá á Vísi. 23.6.2023 13:01
„Fann höndina fara í mjög óeðlilega stöðu“ „Maður fann rosalega mikinn verk og þegar maður sá höndina, rosalega afmyndaða og ljóta í laginu, þá var strax klárt að það væri eitthvað að,“ segir Sandra María Jessen, einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í fótbolta í sumar, um handleggsbrot sitt í fyrrakvöld. 23.6.2023 10:01
Sjáðu TM-mótið í Eyjum: Spenntir hvalir, eldhressar stelpur og fullt af plokkfiski Það var mikið fjör í Vestmannaeyjum um síðustu helgi þar sem 1.100 stelpur sýndu fótboltasnilli sína á TM-mótinu í fótbolta. Nýr slagari úr smiðju Jóns Jónssonar, tileinkaður krakkamótunum í Eyjum, ómaði um svæðið og stelpurnar virtust njóta sín í botn á eyjunni fögru. 23.6.2023 09:01