Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst segir að fjöldi nemenda ætli ekki að hefja meistaranám við skólann á meðan núverandi ástand varir. Vantraustsyfirlýsing gagnvart rektor veki upp spurningar um hvort stjórnin forgangsraði hagsmunum einstaklings ofar velferð stofnunarinnar. 7.2.2026 10:56
Flutningabílar fastir á Þröskuldum Víða um land er hálka eða flughált. Flutningabílar sitja fastir á Þröskuldum. 7.2.2026 08:58
Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki hafa horft á allt myndskeiðið sem hann deildi á samfélagsmiðlum í gær en í lok þess eru andlit fyrrum forsetahjónanna Barack og Michelle Obama sett á líkama apa. Hann sjálfur hafi því ekki gert nein mistök. Myndskeiðinu hefur verið eytt af samfélagsmiðli hans. 7.2.2026 08:44
Éljagangur og slabb í kortunum Veðurstofa Íslands spáir austlægri eða breytilegri átt, þrír til tíu metrar á sekúndu. Á Norðaustur- og Austurlandi er spáð éljagangi en rigningu og slyddu á Vestfjörðum. 7.2.2026 07:54
Mætti með eggvopn á skemmtistað Nokkur erill var í miðborginni í gærkvöldi og barst lögreglu töluvert af tilkynningum vegna samkvæmishávaða, stympinga og ölvunartengdra mála. Einn var ákærður fyrir vopnalagabrot. 7.2.2026 07:35
LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Listaháskóli Íslands reið á vaðið og setur á skólagjöld fyrir nemendur utan EES-svæðisins, að undanteknum nemendum frá Grænlandi, Færeyjum og Sviss. Hækkunin, sem nemur nokkrum milljónum króna, er vegna lagabreytinga háskólaráðherra. 6.2.2026 17:14
Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhendir Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2026. Veitt verða verðlaun í þremur flokkum og er athöfninni í beinu streymi á Vísi. 6.2.2026 15:18
Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Á símafundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hakan Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi sá síðarnefndi frá að Tyrkir hyggjast koma á fót sendiráði hér á Íslandi. 6.2.2026 14:53
Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut í Reykjavík í gærkvöldi. Hann var farþegi í bílnum. 6.2.2026 13:25
Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Níu manna hópur frá Íslandi var um borð í flugvél SAS sem hafnaði í grasi utan brautarinnar eftir tilraun til flugtaks. Finnur Geir Beck, framkvæmdastjóri Samorku, var meðal farþega. 6.2.2026 12:15