Dularfulla súlan er horfin Hin dularfulla málmsúla sem fannst nýverið í eyðimörk Utah í Bandaríkjunum hefur verið fjarlægð. Embættismenn segjast ekki vita hver fjarlægði súluna sem talið er að hafi verið listaverk. 29.11.2020 08:15
Segir aðgerðum í Tigray lokið Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu segir að stjórnarher landsins stjórni nú að fullu Mekelle, höfuðborg Tigrayhéraðs. Hann segir einnig að hernaðaraðgerðum gegn Frelsishreyfingunni, sem stjórnað hafa héraðinu, sé lokið. 29.11.2020 07:48
Fór inn í bíl og rændi ökumann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um rán í Laugardalnum þar sem maður fór inn í bíl, ógnaði ökumanni og hafði á brott muni í eigu ökumannsins. Þá varð slys í Garðabæ þar sem tveir bílar skullu saman og urðu báðir óökufærir. 29.11.2020 07:22
Makaskipti mömmu tíð og verst þegar um ofbeldismenn var að ræða Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segir að ekki eigi að svipta börn bernskunni og sakleysi þeirra. Hann sjálfur þekkir það að alast upp við erfiðar aðstæður og segir málefni barna mikið áherslumál hjá honum og vonast hann til að hjálpa öðrum að glíma við sambærilegar aðstæður og hann upplifði. 28.11.2020 14:04
Mikið um ölvun og hávaðakvartanir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að töluverður erill hafi verið hjá lögregluþjónum í nótt. Mikið hafi verið um ölvunartengd mál og hávaðakvartanir. 28.11.2020 13:21
Eitt boð ber tölurnar uppi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að stóran hluta dreifingar Covid-19 sem greinst hefur að undanförnu megi rekja til eins fjölskylduboðs. Hann segir tölurnar í dag svipaðar og í gær en þó hafi fleiri verið í sóttkví við greiningu. Það gæti verið til marks um línulegan vöxt. 28.11.2020 11:45
Vísbendingar um smit í samfélaginu sem ekki er búið að finna Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að þar á bæ hafi menn miklar áhyggjur af stöðunni vegna faraldurs Covid-19 hér á landi. Sérstaklega af því hve margir eru að greinast smitaðir utan sóttkvíar. 28.11.2020 11:10
Máli Trumps í Pennsylvaínu lýst sem innihaldslausu og vísað frá Áfrýjunardómstóll í Fíladelfíu í Bandaríkjunum hefur vísað frá máli sem lögfræðingar Donald Trumps, forseta Bandaríkjanna, höfðuðu með því markmiði að breyta úrslitum forsetakosninganna í Pennsylvaínu. 28.11.2020 10:13
Einn smitaður og tuttugu í sóttkví á Vestfjörðum Einstaklingur frá Vestfjörðum sem ferðaðist til höfuðborgarsvæðisins í síðustu viku hefur reynst smitaður af Covid-19. Sá fór aftur heim og eru nú tuttugu komnir í sóttkví vegna málsins. Flestir þeirra á norðanverðum Vestfjörðum en sex sunnan Dýrafjarðarganga. 28.11.2020 10:02
Umhleypingar í kortunum Draga mun í dag úr þeirri suðvestanátt sem hefur ráðið ríkjum á Íslandi undanfarna sólarhringa og er von á norðlægri átt á morgun. Áfram verður éljagangur á sunnan- og vestanverðu landinu og hiti í kringum frostmark. 28.11.2020 08:37