Hafa sótt um tekjufallsstyrki fyrir 2,7 milljarða króna 419 rekstraraðilar hafa sótt um tekjufallsstyrki hjá hinum opinbera vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Alls hafa þessir aðilar sótt um styrki fyrir 2,7 milljarða króna og er búið að afgreiða 69 umsóknir fyrir um 590 milljónir. 14.1.2021 17:28
Greindist smitaður á blóð- og krabbameinslækningadeild Sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala (11EG) greindist í kvöld smitaður af Covid-19. Innlagnir á deildina hafa því verið stöðvaðar og fara um þrjátíu sjúklingar og þrjátíu starfsmenn í skimun í fyrramálið. 13.1.2021 23:38
Óttast að missa stjórn á nýja afbrigðinu í Evrópu Forsvarsmenn Evrópusambandsins óttast að nýtt afbrigði nýju kórónuveirunnar, sem virðist smitast auðveldar á milli manna, nái stjórnlausri dreifingu Í Evrópu. Stella Kyriakides, yfirmaður heilbrigðismála hjá ESB, segir að dreifingu afbrigðisins verði að stöðva með öllum ráðum. 13.1.2021 23:20
Trump ákærður fyrir embættisbrot öðru sinni Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld að ákæra Donald Trump, fráfarandi forseta, fyrir embættisbrot vegna aðkomu hans að árásinni á þinghúsið í síðustu viku. Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins gengu til liðs við Demókrata í atkvæðagreiðslunni. 13.1.2021 21:24
Staðfesta niðurstöður Samkeppniseftirlitsins en lækka sekt um 300 milljónir króna Áfrýjunarnefndar samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að sekta Símann hf. fyrir að brjóta gegn sátt sem fyrirtækið gerði við stofnunina um markaðssetningu og sölu á enska boltanum. 13.1.2021 20:08
Dæmdur í fangelsi fyrir að kasta konu fram af svölum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 21 mánaðar fangelsi. Hann var dæmdur fyrir að kasta konu fram af svölum sínum á annarri hæð í Breiðholti árið 2019. Gæsluvarðhald sem hann sætti frá 17. september til 13. október árið 2019 verður dregið frá dómnum. 13.1.2021 19:14
Í gæsluvarðhald eftir að hafa verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi Maðurinn sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í dag fyrir að bana eiginkonu sinni í Sandgerði, hefur verið úrskurðaður í fimm mánaða gæsluvarðhald. Hann hefur verið frjáls ferða sinna frá því í október þegar Landsréttur felldi úr gildi gæsluvarðhald hans. Þá hafði hann verið í gæsluvarðhaldi frá apríl. 13.1.2021 18:46
Skora á stjórnvöld að koma veitingageiranum til aðstoðar hið snarasta Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði segja mörgum veitingahúsum hafa verið lokað og fjölmörg séu á ystu nöf. Þau rekstrarlegt úthald í óbreyttum takmörkunum. Því skora samtökin á stjórnvöld að bregðast við og létta á takmörkunum sem snúa að veitingahúsum og krám. 13.1.2021 18:28
Rýmingu ekki aflétt á Seyðisfirði Ákveðið hefur verið að aflétta ekki rýmingu Fossgötu á Seyðisfirði að svo stöddu. Er það vegna úrkomuspár og var ákvörðunin tekin á samráðsfundi lögreglunnar á Austurlandi, almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands og Múlaþings í dag. 13.1.2021 18:07