Týndist í Reykjavík en fannst á Akranesi átta árum síðar Kötturinn Smigly hvarf frá eigendum sínum í Reykjavík fyrir átta árum síðan. Í gær fannst hann í garði á Akranesi og er hann nú kominn í hendur gömlu eigenda sinna. 3.5.2021 20:05
Bjarndýr banaði konu í göngutúr Svartbjörn banaði 39 ára gamalli konu í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Er það í fjórða sinn sem björn banar manneskju í ríkinu frá 1960, þegar byrjað var að halda utan um slíkar upplýsingar. 3.5.2021 19:22
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Íslenskt par er grunað um að hafa grætt rúmlega 84 milljónir króna á sölu og dreifingu lyfseðilsskyldra lyfja. Talið er að parið, ásamt tveimur öðrum, hafi kerfisbundið stundað hér glæpi í tæpan áratug. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og einnig um nýjan Kompásþátt þar sem fjallað er um skipulagða glæpahópa á Íslandi. 3.5.2021 18:32
Prófum læknanema frestað vegna faraldursins Prófum læknanema á Indlandi hefur verið frestað svo þeir geti tekið þátt í baráttunni við Covid-19 þar í landi. Heilbrigðiskerfi Indlands ræður ekki við faraldurinn en er mikill skortur á sjúkrarúmum og súrefni. 3.5.2021 18:09
Skortur á bóluefnum í héruðum Indlands Nokkur ríki Indlands eru uppiskroppa með bóluefni, degi áður en bólusetningarátak á að hefjast í landinu. Samkvæmt opinberum tölum hafa 7,7 milljónir manna fengið Covid-19 í síðustu tveimur mánuðum. Áður tók það nærri því hálft ár að greina 7,7 smitaða á Indlandi. 30.4.2021 15:50
Handshófskenndar bólusetningar skoðaðar nánar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir það efni sem hafi verið kynnt ríkisstjórninni í húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar í gær hafa verið mjög áhugavert. Það hafi fjallað um hvaða aðferðafræði dugi best til að ná fram hjarðónæmi gegn Covid-19 í samfélaginu. 30.4.2021 14:15
Pence stígur aftur á svið og fer fögrum orðum um Trump Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu pólitísku ræðu í gær eftir að ríkisstjórn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, lét af völdum í upphafi árs. Þrátt fyrir að samband þeirra beið verulega hnekki undir lok ríkisstjórnarinnar og að stuðningsmenn Trumps kölluðu eftir því að Pence yrði myrtur, fór hann fögrum orðum um fyrrverandi yfirmann sinn. 30.4.2021 13:38
Vinur Gaetz vildi náðun og viðurkenndi kynlíf með sautján ára stúlku Joel Greenberg, kjörinn fulltrúi í Flórída og vinur þingmannsins umdeilda Matt Gaetz, skrifaði í bréfi til Rogers Stone, fyrrverandi ráðgjafa Donalds Trump, fyrrverandi forseta, að hann og Gaetz hefðu greitt fyrir kynlíf með mörgum konum, þeirra á meðal sautján ára stúlku. 30.4.2021 12:09
Lögmaður samtaka Navalnís handtekinn í Moskvu Ívan Pavolv, lögmaður and-spillingarsamtaka Alexeis Navalní, hefur verið handtekinn. Hann er sakaður um að hafa lekið upplýsingum um rannsókn og var handtekinn nokkrum klukkustundum áður en hann átti að mæta í dómsal þar sem hann er verjandi fyrrverandi blaðamanns sem hefur verið sakaður um landráð. 30.4.2021 10:34
Grjótkast varð að snörpum átökum Yfirvöld í Kirgistan segja að minnst þrettán manns hafa fallið í átökum við hermenn Tadsíkistan. Þá hafi vel yfir hundrað manns særst, þar af tveir í alvarlegu ástandi. 30.4.2021 09:41