Gameveran og Trúðalestin halda Counter-Strike veislu Trúðalestin mætir til Gameverunnar í kvöld. Saman munu þau halda alvöru Counter-Strike veislu. 19.5.2022 20:31
Smyglaði myndefni til AP í túrtappa og hvarf skömmu síðar Úkraínskur bráðatæknir í sjálfboðastarfi í fangaði störf sín í Maríupól á mynd og kom efninu til blaðamanna AP fréttaveitunnar á minniskorti sem hún faldi í túrtappa. Degi síðar var hún handsömuð af Rússum og ranglega sökuð um að tilheyra Azov-herdeildinni. 19.5.2022 14:23
Lýgur því að Rússar hafi aldrei hótað notkun kjarnorkuvopna María Zakharova, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, hélt því fram í morgun að Rússar hefðu aldrei hótað notkun kjarnorkuvopna í tengslum við innrásina í Úkraínu. Hún skammaðist út í ráðamenn í Bandaríkjunum fyrir að halda því fram og sakaði þá um ábyrgðarleysi. 19.5.2022 11:11
Rússar sagðir hafa áhyggjur af framferði hermanna sinna í Maríupól Rússneskir embættismenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að hersveitir Rússa í Maríupól hafi og séu að fara verulega illa með íbúa borgarinnar. Það muni gera Rússum erfiðara að kveða niður mótspyrnu í borginni og koma niður á áróðri þeirra um að Rússar hafi frelsað borgin. 19.5.2022 10:02
Vaktin: „Rússar mega ekki vinna þetta stríð“ Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur varað við því að fæðuskortur vegna átakanna í Úkraínu gæti varað í mörg ár og valdið hungursneyð víða um heim. 19.5.2022 06:47
Skammaði sína æðstu embættismenn fyrir „vanþroska“ Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skammaði sína æðstu embættismenn fyrir þroskaleysi og fyrir að bregðast í viðbrögðum við faraldri Covid-19 þar í landi. Þetta segja ríkismiðlar Norður-Kóreu að Kim hafi gert á fundi stjórnmálanefndar Verkamannaflokks Norður-Kóreu (Politburo) á dögunum. 18.5.2022 12:17
Játaði að hafa stungið fimm til bana og reynt að myrða aðra með boga og örvum Andersen Bråthen, játaði í morgun að hafa myrt fimm manns í Noregi í fyrra. Í dómsal í dag gekkst hann við öllum ákærum gegn sér en auk morðanna fimm er hann sakaður um ellefu morðtilraunir og ýmis önnur brot. 18.5.2022 10:48
„Rísandi stjarna“ Repúblikana tapaði í forvali Þingmaðurinn Madison Cawthorn tapaði í forvali Repúblikanaflokksins í gær og mun því ekki sitja á þingi annað kjörtímabil. Chuck Edwards, sem situr í öldungadeild ríkisþings Norður-Karólínu bar sigur úr bítum en Cawthorn hefur verið plagaður af hverju hneykslinu á fætur öðru í aðdraganda forvalsins og hafði reitt félaga sína í Repúblikanaflokknum til reiði með ummælum sínum og hegðun. 18.5.2022 10:05
Vaktin: Borubrattir Rússar segja fall Maríupól marka þáttaskil Svíar og Finnar hafa skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu.„Finnland og Svíþjóð hafa komist að samkomulagi að fara í ferlið hönd í hönd og á morgun skilum við umsóknunum inn saman,“ sagði Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á fundi með forseta Finnlands í gær. 18.5.2022 06:43
Bein útsending: Leyniþjónustumálanefnd fundar um fljúgandi furðuhluti Undirnefnd Leyniþjónustumálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings heldur í dag fund um fljúgandi furðuhluti. Háttsettir embættismenn í leyniþjónustum og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna muni sitja fyrir svörum en hluti fundarins verður í beinni útsendingu. 17.5.2022 12:01