Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Komnir langt í gegnum varnir Rússa í Kharkív Hersveitir Úkraínu hafa sótt töluvert fram gegn Rússum Kharkív-héraði í norðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum. Það gerðu þær með skyndisókn sem virðist hafa komið Rússum á óvart og Úkraínumenn hafi nýtt sér það að Rússar fluttu hersveitir til suðurs til að bregðast við sókn Úkraínumanna í Kherson-héraði. 8.9.2022 11:04
Fallhlífarstökk og skothríð hjá Babe Patrol Stelpurnar í Babe Patrol ætla að æfa sig í stafrænu fallhlífarstökki í kvöld með því að stökkva bæði úr logandi flugvélum og þyrlum í Warzone. 7.9.2022 20:30
Horfðu á kynningu Apple: Opinbera iPhone 14 Forsvarsmenn tæknirisans Apple ætla að kynna iPhone 14 á árlegri kynningu fyrirtækisins í dag. Þetta árið ber kynningin titilinn „Far out“ en starfsmenn Apple hafa varist allra fregna af því hvað til stendur að kynna í dag, auk nýs síma. 7.9.2022 16:20
Senda skýr skilaboð til EA og boða upprisu herkænskuleikja Starfsmenn leikjafyrirtækisins Slipgate birtu á dögunum myndband sem sýnir spilun úr leiknum Tempest Rising. Leikurinn svipar mjög til gamalla herkænskuleikja og þá sérstaklega til Command & Conquer-leikjanna. Það er engin tilviljun. 7.9.2022 16:05
Musk má nota yfirlýsingar uppljóstrarans gegn Twitter Auðjöfurinn Elon Musk má breyta lögsókn sinni gegn Twitter og nota uppljóstranir fyrrverandi öryggisstjóra fyrirtækisins. Þetta ákvað dómari sem er með málið á sínu borði í dag en hann neitaði beiðni Musks um að aðalmeðferð málsins yrði frestað frá október til nóvember. 7.9.2022 14:58
Ógna birgðalínum Rússa í austri Hersveitir Úkraínu virðast hafa náð þó nokkrum árangri í gagnsókn þeirra í Kharkív-héraði í norðurhluta landsins. Gagnsóknin hófst í gær og virðast Úkraínumenn hafa komið Rússum á óvart, umkringt rússneska hermenn í borginni Balaklia og sótt áfram austur inn á yfirráðasvæði Rússa. 7.9.2022 11:52
Leggja vinskapinn að veði í Shift Happens Stelpurnar í Queens ætla að leggja vinskapinn að veði í streymi kvöldsins og spila leikinn Shift Happens. Í þeim leik þurfa tveir spilarar að taka höndum saman til að leysa þrautir. 6.9.2022 20:30
Sækja líka fram gegn Rússum í norðri Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu mun í ávarpi sínu í kvöld tilkynna „góðar fréttir“ varðandi nýja gagnsókn Úkraínumanna gegn hersveitum Rússlands í norðurhluta landsins. Hávær orðrómur gengur um á samfélagsmiðlum í Úkraínu og Rússlandi um að Úkraínumenn hafi náð góðum árangri í austurhluta Kharkív-héraðs. 6.9.2022 15:29
Krafa Trumps samþykkt af dómara sem hann tilnefndi Dómari opinberaði í gær þá niðurstöðu sína að utanaðkomandi aðili myndi fara yfir gögnin sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lögðu hald á í Mar-a-Lago, sveitarklúbbi og heimili Donalds Trumps í Flórída. Dómarinn hefur líka meinað dómsmálaráðuneytinu tímabundið að nota gögnin sem haldlögð voru við mögulega rannsókn sem beinist að Trump. 6.9.2022 14:31
Fundu líkamsleifar í Eystrasalti Líkamsleifar hafa fundist í sjónum í Eystrasalti þar sem einkaþota brotlenti um helgina. Brak hefur einnig fundist en mikil óvissa ríkir varðandi það hvað leiddi til þess að flugvélin hrapaði í hafið. 6.9.2022 13:00