Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Hafa náð frumkvæðinu af Rússum Rússneskir hermenn lögðu frá sér byssur sína og yfirgáfu skrið- og bryndreka sína í massavís er þeir flúðu frá Kharkív-héraði í Úkraínu um helgina. Heimamenn segja þá hafa reynt að dulbúa sig sem borgara og jafnvel flúið á stolnum reiðhjólum. Mikil óreiða skapaðist meðal hermanna vegna undraverðrar gagnsóknar Úkraínumanna í héraðinu sem hófst í síðustu viku. 12.9.2022 11:34
Samsæringur skaut eiginkonu sína, dóttur og hund Bandarískur maður var skotinn til bana af lögregluþjónum eftir að hann skaut eiginkonu sína, dóttur og hund. Dóttir hans lifði árásina af og hringdi á lögregluna en þegar lögregluþjóna bar að garði skiptist maður á skotum við þá og var skotinn til bana. 12.9.2022 09:09
Enn bætist á vandræði Trumps Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur kosningasjóð Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, til rannsóknar. Sérstaklega er verið að skoða hvernig peningum hefur verið safnað í „Save America“ sjóðinn og hvernig þeim hefur verið varið. 9.9.2022 22:31
Úr Red Dead í GTA 6 Starfsmenn leikjafyrirtækisins Rockstar kvöddu nýverið leikinn Red Dead Redemption. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa ákveðið að hætta að þjónusta fjölspilunarhluta leiksins etir nýjustu uppfærslu hans og munu starfsmenn Rockstar þess í stað einbeita sér að framleiðslu sjötta Grand Theft Auto leiksins. 9.9.2022 14:18
Segist aldrei ætla að gefa frá sér kjarnorkuvopnin Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, lýsti því yfir í morgun að hann ætlaði aldrei að láta kjarnorkuvopn sín af hendi. Hann sagði að Bandaríkjamenn vildu ekki eingöngu að hann gæfi frá sér vopnin, heldur vildu þeir koma honum frá völdum. 9.9.2022 12:09
Hafa náð undraverðum árangri á nokkrum dögum Úkraínumenn hafa náð umfangsmiklum árangri í gagnárás gegn Rússum í Kharkív-héraði í norðurhluta landsins. Hersveitir Úkraínu eru sagðar komnar minnst fimmtíu kílómetra í gegnum varnir Rússa á einungis þremur dögum og hafa frelsað tugi þorpa og bæja sem hafa verið í haldi Rússa frá því innrásin hófst. 9.9.2022 10:59
Heimsækja fjarlæga stjörnuþoku Mjamix, eða Marín, tekur á móti Allifret í kvöld og saman ætla þau að ferðast aftur í tíma til fjarlægrar stjörnuþoku í órafjarlægð. Þau munu spila Lego Star Wars í streymi kvöldsins. 8.9.2022 20:31
Elísabet II Bretlandsdrottning er látin Elísabet önnur, drottning Bretlands er látin. Hún var 96 ára gömul. Heilsu drottningarinnar hafði hrakað hratt á undanförnum mánuðum en hún lést í kastala sínum í Skotlandi. 8.9.2022 17:31
Bannon aftur ákærður fyrir svik vegna múrsins Stephen Bannon, langtímabandamaður Donalds Trumps og fyrrverandi ráðgjafi hans í Hvíta húsinu, hefur verið ákærður fyrir svik og fjárþvætti. Saksóknarar í New York saka hann um að svindla á fólki í tengslum við fjáröflunina „We Build the Wall“ sem safna átti peningum til byggingar múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. 8.9.2022 16:39
Allt það helsta frá haustkynningu Apple Forsvarsmenn Apple kynntu í gær nýjar vörur á árlegri kynningu fyrirtækisins. Þar á meðal var kynntur nýr sími, ný snjallúr og ný heyrnartól. Eins og gengur og gerist þá vöktu nýju tækin og tólin mikla athygli. 8.9.2022 12:38