Hafa enn ekki fundið ljónið Lögreglan í Berlín og Brandenburg hefur enn ekki fundið ljónið sem talið er að gangi lausum hala í suðurhluta borgarinnar og úthverfum. Til stendur að auka viðbúnað og umfang leitarinnar í dag. 21.7.2023 07:44
Byrjaðir að nota klasasprengjur Úkraínumenn eru byrjaðir að skjóta klasasprengjum að varnarlínum Rússa í suður- og austurhluta Úkraínu. Þá leggja bakhjarlar Úkraínu áherslu á að laga hergögn Úkraínumanna sem skemmast í þeim hörðu átökum sem eiga sér stað í landinu. 20.7.2023 14:10
Sagði „Æi, fjandinn hafi það“ og skaut 95 ára konu með rafbyssu Saksóknarar í Ástralíu segja lögregluþjóna sem beittu rafbyssu gegn 95 ára gamalli konu með elliglöp hafa beitt óhóflega miklu valdi. Konan, sem hét Clare Nowland, féll í gólfið og höfuðkúpubrotnaði þegar hún var beitt rafbyssunni. Þá dó hún nokkrum dögum síðar. 20.7.2023 11:03
Sækir um skilnað frá grunuðum raðmorðingja Íslensk kona sem gift er grunuðum raðmorðingja hefur sótt um skilnað. Ása Guðbjörg Ellerup er gift Rex Heuermann en hann hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjár konur og er grunaður um að hafa myrt þá fjórðu í „Gilgo Beach morðunum“ svokölluðu. 20.7.2023 10:11
Kveiktu í sendiráði Svía í Írak Nokkur hundruð menn ruddust inn í sendiráð Svíþjóðar í Bagdad í Írak í morgun og kveiktu í ráðuneytinu. Ráðist var á sendiráðið eftir vegna skipulagðra mótmæla í Svíþjóð þar sem til stendur að brenna eintak af Kóraninum fyrir utan sendiráð Íraks í Stokkhólmi í dag. 20.7.2023 09:05
Dúós: Kostuleg keppni í Gang Beasts Pétur Jóhann Sigúfsson er ekki mikill leikjaspilari en hann fékk Óla Jóels til að aðstoða sig við að læra. Í sjötta þætti Dúós kíktu þeir félagar á partíleikinn Gang Beasts en óhætt er að segja að aðfarir þeirra hafi verið kostulegar. 20.7.2023 09:00
Ljón leikur lausum hala í Berlín Lögreglan Í Berlín hefur beðið íbúa í úthverfum borgarinnar um að halda sig heima eftir að stórt kattardýr, sem talið er vera ljónynja, sást á svæðinu í gærkvöldi. Þá eru gæludýraeigendur beðnir um að halda dýrum sínum innandyra. 20.7.2023 08:07
Ákæra sextán Repúblikana í Michigan Ríkissaksóknari Michigan í Bandaríkjunum ákærði í gær sextán Repúblikana sem reyndu að gera sjálfa sig að kjörmönnum í forsetakosningunum 2020. Þannig vildu þeir snúa tapi Donalds Trump í Michigan í sigur. 19.7.2023 14:25
Fer ekki til Suður-Afríku vegna handtökuskipunar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlar ekki til Suður-Afríku á fund BRICS-ríkjanna svokölluðu. Ef Pútín færi ætti hann á hættu að vera handtekinn fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. 19.7.2023 11:29
Loka svæðinu klukkan fimm í dag vegna slæms skyggnis Lokað verður fyrir aðgang að gossvæðinu við Litla Hrút klukkan fimm í dag. Er það vegna þess hve lélegt skyggni verður þá. 19.7.2023 10:13