Erlent

Tókst að á­kæra Mayorkas í annarri til­raun

Samúel Karl Ólason skrifar
Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjanþings, í þinghúsinu í gær. Repúblikanar höfðu tækifæri til að ákæra Mayorkas í gær, eftir að þingmaður flokksins sneri aftur til vinnu eftir krabbameinsmeðferð og áður en nýr þingmaður Demókrtaflokksins mætti til starfa.
Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjanþings, í þinghúsinu í gær. Repúblikanar höfðu tækifæri til að ákæra Mayorkas í gær, eftir að þingmaður flokksins sneri aftur til vinnu eftir krabbameinsmeðferð og áður en nýr þingmaður Demókrtaflokksins mætti til starfa. AP/J. Scott Applewhite

Repúblikönum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings tókst í gær að ákæra Alejandro N. Mayorkas, yfirmann heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, fyrir meint embættisbrot. Þetta var í annað sinn sem þeir greiddu atkvæði um ákæru og var hún samþykkt með einu atkvæði.

Mayorkas hefur verið ákærður vegna ástandsins á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó en hann er ekki sakaður um nokkurs konar glæp.

Eins og áður segir var ákæran samþykkt með einu atkvæði en síðast kom þingmaður Demókrataflokksins óvænt af sjúkrahúsi til að greiða atkvæði og kom leiðtogum Repúblikanaflokksins á óvart. Því reyndu þeir aftur í gærkvöldi, eftir að einn þingmanna þeirra sneri aftur af sjúkrahúsi og áður en nýr þingmaður Demókrataflokksins snýr til starfa

Sjá einnig: Demókrati nældi í þingsæti Santos

Eins og síðast greiddu þrír þingmenn Repúblikanaflokksins atkvæði gegn því að ákæra. Þeir höfðu áður sagt að það skapi slæmt fordæmi að ákæra embættismann fyrir að framfylgja stefnu forseta. Hann sé ekki sakaður um að hafa brotið af sér í starfi. Þá segja þeir augljóst að Mayorkas verði aldrei sakfelldur í öldungadeildinni, þar sem Demókratar eru með nauman meirihluta.

Þingið ákærði síðast ráðherra fyrir meint embættisbrot árið 1876. Það var William Belknap, stríðsráðherra, sem var sakaður um umfangsmikla spillingu.

Demókratar hafa sakað Repúblikana um að beita ákærum í pólitískum tilgangi. Þeir hafa sömuleiðis sakað Repúblikana um hræsni fyrir að ákæra Mayorkas skömmu eftir að þeir stóðu í vegi framgöngu frumvarps sem innihélt einhverjar umfangsmestu aðgerðir á landamærunum í áratugi.

Sjá einnig: Gera aðra til­raun með hernaðar­að­stoð

Repúblikanar, sem komu að því að semja frumvarpið hefðu náð fram mörgum af baráttumálum sínum á landamærunum en snerust gegn frumvarpinu eftir að Donald Trump, væntanlegur forsetaframbjóðandi flokksins, lýsti því yfir að hann væri mótfallinn frumvarpinu og vildi nota ástandið á landamærunum í kosningabaráttu sinni gegn Joe Biden.

Repúblikanar hafa lengi verið með horn í síðu Alejandro Mayorkas, sem stýrir heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna, og saka hann um að bera ábyrgð á ástandinu á landamærum við Mexíkó.AP/Alex Brandon

Repúblikanar hafa einnig átt í formlegri rannsókn á Joe Biden, fyrir meint embættisbrot. Sú rannsókn hefur litlum árangri skilað.

Sjá einnig: Hefja formlega rannsókn á Biden

Trump var tvisvar sinnum ákærður fyrir embættisbrot í forsetatíð sinni. Fyrst árið 2019 þegar hann bað Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, um að rannsaka Joe Biden og gaf í skyn að annars myndi hann stöðva hernaðaraðstoð til Úkraínu. Hann var svo aftur ákærður árið 2021, vegna árásar stuðningsmanna hans á bandaríska þingið þann 6. janúar það ár.

Hann er eini forseti Bandaríkjanna sem hefur tvisvar sinnum verið ákærður fyrir embættisbrot og hefur hann verið mjög reiður yfir því. Trump hefur á undanförnum árum ítrekað kallað eftir því að Biden verði einnig ákærður.

Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar, segir í yfirlýsingu að Mayorkas eigi skilið að vera ákærður fyrir embættisbrot. Hann hafi neitað að starfa í samræmi við lög og sagt þinginu ósatt.


Tengdar fréttir

Hvetja til aukinnar hernaðar­upp­byggingar Evrópu

Forsætisráðherra Póllands og kanslari Þýskalands hvetja til tafarlausrar og aukinnar hernaðaruppbyggingar og samvinnu Evrópuríkja til að bregðast við útþenslustefnu Rússa. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkt loks aukna aðstoð við Úkraínu í gærkvöldi.

Tusk segir Repúblikönum að skammast sín

Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Repúblikönum í öldungadeild Bandaríkjaþings að skammast sín. Er það í kjölfar að þingmennirnir felldu frumvarp sem þeir höfðu sjálfir beðið um og komið að því að semja. Það frumvarp sneri meðal annars að hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum.

Snerist hugur nokkrum tímum eftir að hann sagði aðgerðir nauðsynlegar

Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ráðlagði meðlimum þingflokks síns í gærkvöldi að greiða atkvæði gegn nýju frumvarpi um aukna gæslu og hertar aðgerðir á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og Ísraelum, auk annars.

Langar viðræður um landamærin og hernaðaraðstoð skila „dauðu“ frumvarpi

Öldungadeildarþingmenn úr báðum flokkum Bandaríkjaþings birtu í gær nýtt frumvarp um öryggi á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð til Úkraínu og Ísrael. Frumvarpið var samið eftir langar viðræður en ef þingmönnum tekst að fá það samþykkt í öldungadeildinni þykir líklegt að það verði ekki svo gott sem tekið til umfjöllunar í fulltrúadeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×