„Djöfulleg“ árás gerð á Odessa í nótt Rússar létu sprengjum rigna yfir hafnarborgina Odessa í nótt en árásin beindist sérstaklega að höfn borgarinnar. Úkraínumenn lýsa árásinni sem djöfullegri en upplýsingar um skemmdir og mannfall liggja ekki fyrir. Þá þurftu á þriðja þúsund manns að flýja heimili sín á Krímskaga eftir árás Úkraínumanna. 19.7.2023 08:21
Trump með stöðu sakbornings, aftur Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir Jack Smith, sérstakan rannsakenda Dómsmálaráðuneytisins, hafa tilkynnt sér að hann hafi stöðu sakbornings í enn einu málinu. Þetta mál snýr að viðleitni Trumps til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði gegn Joe Biden, núverandi forseta, og gefur tilkynningin til kynna að Trump verði ákærður. 18.7.2023 15:09
Bandarískur hermaður handsamaður í Norður-Kóreu Bandarískur hermaður var handsamaður í morgun er hann fór frá Suður- inn í Norður-Kóreu. Hermaðurinn er sagður hafa verið í kynningarferð á hinu svokallaða sameiginlega öryggissvæði í þorpinu Panmunjom við landamærin. 18.7.2023 13:51
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vilja ekki gera hermenn að fallbyssufóðri eins og Rússar Úkraínumenn hafa breytt um aðferðir í gagnsókn þeirra gegn Rússum í suður- og austurhluta landsins, eftir hæga og kostnaðarsama sókn undanfarnar vikur. Jarðsprengjur og þyrlur Rússa hafa reynst úkraínskum hermönnum sérstaklega erfiðar. 18.7.2023 13:00
Gossvæðið bara opið frá Suðurstrandarvegi Eldstöðvarnar við Litla Hrút eru eingöngu opnar frá Suðurstrandavegi í dag. Öðrum vegum eða vegaslóðum hefur verið lokað. Leið þessi kallast Meradalaleið og er um tuttugu kílómetra löng, fram og til baka. 18.7.2023 10:24
Beindu stýriflaugum og drónum að Odessa Rússar skutu stýriflaugum og flugu sjálfsprengidrónum að höfninni í Odessa við Svartahaf í nótt. Árásin er sögð hafa valdið skemmdum á innviðum í höfninni, sem er mikilvæg fyrir kornútflutning Úkraínumanna. 18.7.2023 08:03
Ætla að mynda bestu herdeildir Evrópu á næstu árum Ráðamenn í Þýskalandi telja að innan nokkurra ára verði þeir með best búnu herdeildir (e. Division) innan Atlantshafsbandalagsins, að Bandaríkjunum undanskildum. Yfirmaður þýska hersins segist vongóður að fyrsta nýja herdeild Þjóðverja verði klár fyrir árið 2025. 17.7.2023 23:31
Ætla ekki að leyfa útflutning korns lengur Yfirvöld í Rússlandi ætla ekki að framlengja kornsamkomulagið svokallaða, sem gert hefur Úkraínumönnum kleift að flytja út korn. Talsmaður Valdimírs Pútín, forseta Rússlands, segir ákvörðunina ekki tengjast árásinni á brúnna yfir Kerch-sund. 17.7.2023 11:08
Microsoft og Sony semja um Call of Duty Forstjóri leikjadeildar Microsoft tilkynnti í gær að samkomulag hefði náðst við forsvarsmenn Sony um Call of duty, leikina vinsælu. PlayStation eigendum verður áfram tryggður aðgangur að leikjunum, jafnvel þó Microsoft, sem framleiðir xBox leikjavélarnar, kaupir Activision Blizzard, eins og í stefnir. 17.7.2023 09:02
„Sumarveður“ í kortunum Norðlægar áttir verða ríkjandi á næstu dögum en í vikunni er útlit fyrir að landið skiptist í tvenn hvað hita varðar. Hlýrra verður á sunnanverðu landinu en svalt á því norðanverðu. 17.7.2023 07:58