Kári Árnason dregur sig úr landsliðshópnum Guðmundur Benediktsson fullyrti nú í kvöld að landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason hefði dregið sig úr íslenska landsliðshópnum sem á að mæta Mexíkó, Færeyjum og Póllandi á næstu dögum. 25.5.2021 20:25
Víkingar í úrslit Víkingur vann í kvöld Hörð Ísafjörð í oddaleik um sæti í úrslitaleik umspils Grill66-deildar karla í handbolta, lokatölur 39-32. 25.5.2021 20:00
Donnarumma líklega á förum þar sem Milan hefur sótt markvörð Ítalska knattspyrnufélagið AC Milan hefur samið við franska markvörðinn Mike Maignan. Þykir það benda til þess að Gianluigi Donnarumma, landsliðsmarkvörður Ítalíu, sé á förum frá félaginu. 25.5.2021 19:16
Segja að Real vilji losna við Bale og Hazard | Allegri tilkynntur í næstu viku Heimildir Sky Sports herma að Real Madríd vilji losna við vængmennina Gareth Bale og Eden Hazard í sumar. Reikna má með mikilli uppstokkun hjá Madrídingum í sumar þar sem Zinedine Zidane, þjálfari liðsins, virðist einnig á förum. 25.5.2021 17:45
Harry Kane endurtók leik Andy Cole frá 1994 Harry Kane endaði marka- og stoðsendingahæstur í ensku úrvalsdeildinni á nýafstaðinni leiktíð. Það er eitthvað sem engum hefur tekist síðan Andy Cole gerði slíkt hið sama tímabilið 1993/1994. 25.5.2021 07:00
Dagskráin í dag: Stjörnumenn geta tryggt sig áfram, mikilvægir leikir í Pepsi Max og Seinni bylgjan Það er nóg um að vera á Íslandi í dag þegar kemur að íþróttum. Fjöldinn allur af leikjum eru í beinni dagskrá í dag. 25.5.2021 06:00
Ver Kepa mark Chelsea í úrslitum Meistaradeildar Evrópu? Það gæti farið svo að Edouard Mendy, markvörður Chelsea, verði fjarri góðu gamni er Chelsea mætir Manchester City í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Spánverjinn Kepa Arrizabalaga gæti því staðið vaktina er félögin mætast þann 29. maí. 24.5.2021 23:00
Bjarki Már skoraði níu í tapi Lemgo og lærisveinar Guðmundar biðu afhroð Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í þýska handboltanum í kvöld. Tvö þeirra máttu þola tap. 24.5.2021 21:31
Emma Hayes valin besti þjálfarinn annað árið í röð Emma Hayes, þjálfari Englandsmeistara Chelsea, var valin besti þjálfari úrvalsdeildar kvenna þar í landi annað árið í röð. 24.5.2021 20:30
Sjáðu fagnaðarlætin eftir að Magdeburg tryggði sér titilinn Þýska handknattleiksliðið Magdeburg varð í gærkvöld Evrópumeistari er liðið lagði Füchse Berlin með þriggja marka mun í alþýskum úrslitaleik Evrópudeildarinnar, lokatölur 28-25. 24.5.2021 19:16