Reynsluboltinn Beitir og nýliðinn Árni Marinó magnaðir Reynsluboltinn Beitir Ólafsson var frábær er KR ríghélt í 2-1 forystu manni færri gegn KA á Dalvíkurvelli í Pepsi Max deildinni í knattspyrnu. Þá var nýliðinn Árni Marinó Einarsson grátlega nálægt því að tryggja ÍA stig í Fossvogi. Víkingur tryggði 1-0 sigur með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. 6.7.2021 14:00
Líkleg byrjunarlið: Emerson kemur inn hjá Ítalíu og Dani Olmo hjá Spáni Ítalski fjölmiðillinn La Gazzetta dello Sport reiknar ekki með að miklum breytingum á byrjunarliðum Ítalíu og Spánar er liðin mætast í undanúrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu klukkan 19.00 í kvöld. Talið er að bæði lið geri eina breytingu. 6.7.2021 13:00
Leggja allt kapp á að halda Harry Kane Fabio Paratici, nýráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá enska knattspyrnufélaginu Tottenham Hotspur, segir félagið leggja allt kapp á að helda enska landsliðsframherjanum Harry Kane innan sinna raða. 5.7.2021 17:01
Markvörður Lettlands látinn aðeins 24 ára að aldri Matiss Kivlenieks, markvörður Lettlands og Columbus Blue Jackets í NHL-deildinni í íshokkí, er látinn aðeins 24 ára að aldri. Aðeins rúmur mánuður er síðan Kivlenieks stóð í markinu er Lettland vann frækinn 2-0 sigur á Kanada á HM í íshokkí. 5.7.2021 16:30
Þjálfari Dana opnar sig um fjölskylduharmleik Kasper Hjulmand, þjálfari danska landsliðsins, opnaði sig um fjölskylduharmleik á blaðamannafundi í dag. Þá minntist hann á að hafa verið að þjálfa er leikmaður varð fyrir eldingu og var í dái í tvo mánuði. 5.7.2021 15:31
Veratti ber af þeim leikmönnum sem eru komnir í undanúrslit Ítalski miðjumaðurinn Marco Veratti hefur staðið sig hvað best af þeim leikmönnum sem eru komnir í undanúrslit Evrópumótsins í knattspyrnu. Allavega ef meðaleinkunn þeirra er skoðuð. 5.7.2021 13:30
Snæfríður Sól á Ólympíuleikana í Tókýó Sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir mun fara fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikana í Tókýó í Japan. Mun hún keppa í 100 og 200 metra skriðsundi. 5.7.2021 13:01
Wenger styður að halda HM á tveggja ára fresti Arsène Wenger, fyrrum þjálfari enska knattspyrnufélagsins Arsenal, styður þá hugmynd að halda heimsmeistaramótið í knattspyrnu á tveggja ára fresti. 5.7.2021 12:30
Tékkar Schick Tékkland inn í undanúrslit eða hefur Kjær-leikur Dana betur? Tékkland og Danmörk mætast í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu í dag. Liðin hafa bæði þurft að ferðast yfir fjöll og firnindi en leikur dagsins fer fram í Bakú í Aserbaísjan. 3.7.2021 10:00
Stjörnuliðið gerði virkilega vel Stjarnan vann sinn þriðja leik í röð í Pepsi Max deild kvenna er liðið lagði Íslandsmeistara Breiðabliks mjög óvænt 1-2 á Kópavogsvelli. Magnaður sigur Stjörnunnar var eðlilega til umræðu í Pepsi Max Mörkunum. 2.7.2021 17:15