Fyrirliðinn um óvænt mark sitt: „Alltaf gaman að skora en ég er bara ánægð með að við setjum fjögur“ „Mjög stolt, þetta var mjög mikilvægur leikur og við vissum að Tékkland var með sterkt og vel spilandi lið. Höldum hreinu og skorum fjögur svo ég gæti ekki verið sáttari,“ sagði fyrirliði Íslands, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, að loknum fræknum sigri Íslands í kvöld. 22.10.2021 22:10
Þorsteinn eftir stórsigurinn á Tékklandi: „Við erum í bílstjórasætinu og ráðum því sjálf hvernig framhaldið verður“ „Úrslitin eru náttúrulega eitthvað sem maður hefði alltaf óskað sér. Þetta var hörkuleikur, ef ég segi sanngjarnt frá var þetta kannski ekki 4-0 leikur,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska landsliðsins, eftir stórsigur Íslands á Tékklandi. 22.10.2021 21:54
Berglind Björg: „Nei nei nei, ég skoraði þetta mark“ Berglind Björg Þorvaldsdóttir opnaði markareikning Íslands í 4-0 stórsigrinum á Tékklandi í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í kvöld. Hún var eðlilega himinlifandi að leik loknum er hún ræddi við Vísi og Stöð 2. 22.10.2021 21:29
Öruggt hjá Arsenal Arsenal vann nokkuð þægilegan 3-1 sigur á Aston Villa í eina leik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. 22.10.2021 21:00
Twitter yfir mögnuðum sigri á Tékklandi: „Hvað er að gerast Ísland?“ Ísland vann magnaðan 4-0 sigur á Tékklandi í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í kvöld. 22.10.2021 20:49
Sandra markahæst í tapi Sandra Erlingsdóttir var markahæst í tapi Álaborgar gegn SønderjyskE í dönsku B-deildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 22-28. 22.10.2021 19:46
Gummersbach áfram á sigurbraut | Arnar Birkir markahæstur Það var nóg um að vera í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld þar sem fjöldi Íslendinga var í sviðsljósinu. Arnar Birkir Hálfdánarson átti frábæran leik í liði Aue sem mátti þola þriggja marka tap og þá vann Íslendingalið Gummersbach sex marka sigur. 22.10.2021 19:11
Fór upp að Pálma og spurði hvort hann ætlaði að skjóta í sama horn og alltaf fyrir vítið mikilvæga Ingvar Jónsson varði vítaspyrnu Pálma Rafns Pálmasonar í 2-1 sigri Víkinga á KR í Frostaskjólinu í leik sem fór langleiðina með að tryggja Víking sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 30 ár. 21.10.2021 07:00
Dagskráin í dag: Íslendingaslagir í Evrópudeildinni og íslenskur körfubolti í aðalhlutverki Það er vægast sagt nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport á þessum líka fína fimmtudegi. 21.10.2021 06:01
Biðja stuðningsmenn um að látast ekki vera Arabar Eftir að Newcastle United var keypt af krónprins Sádi-Arabíu hefur borið á því að stuðningsmenn liðsins hafa mætt klæddir fatnaði sem sést einna helst í Miðausturlöndum ásamt því að bera höfuðföt sem tíðkast þar. 20.10.2021 23:30