Refsuðu um leið og við gáfum þeim færi á því „Það er bara fyrst og fremst heiður. Einhverskonar verðlaun fyrir vel unnin störf. Maður er mjög stoltur að vera kominn inn í þennan hóp fyrir þetta verkefni og fá smjörþefinn af þessu,“ sagði Viktor Karl Einarsson á fjarfundi eftir landsleik Íslands og Suður-Kóreu fyrr í dag. 15.1.2022 15:16
Man City með þrettán stiga forskot þökk sé De Bruyne Kevin De Bruyne tryggði Manchester City 1-0 sigur á Chelsea í uppgjöri toppliða ensku úrvalsdeildarinnar í dag. 15.1.2022 14:25
Guðbjörg Jóna bætti eigið Íslandsmet Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir bætti eigið Íslandsmet í 60 metra spretthlaupi í dag. Ef Guðbjörg Jóna hefði ekki gert það hefði Tiana Ósk Whitworth átt metið þar sem hún bætti einnig tímann sem Guðbjörg átti fyrir hlaup dagsins. 15.1.2022 12:45
EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar: Slæmi kaflinn kom aldrei Ísland vann góðan fjögurra marka sigur á Portúgal í fyrsta leik Evrópumótsins í handbolta á föstudagskvöld. Hinn margumtalaði „slæmi kafli“ kom aldrei hjá íslenska liðinu. 15.1.2022 12:16
Minntist látins félaga gegn Íslandi Hinn 24 ára gamli markvörður Gustavo Capdeville minntist góðs vinar síns og fyrrverandi liðsfélaga Aldredo Quintana í leik Íslands og Portúgal á Evrópumótinu í handbolta í gær. 15.1.2022 11:30
Derby úr öskunni í eldinn Tímabilið hefur ekki beint verið dans á rósum hjá enska B-deildarliðinu Derby County. Liðið situr á botni deildarinnar eftir að 21 stig var tekið af þeim vegna fjárhagsvandræða. Þá hefur liðið verið sett í félagaskiptabann. 15.1.2022 11:01
Bjarki Steinn lánaður í C-deildina | Venezia semur við Nani Bjarki Steinn Bjarkason hefur verið lánaður frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Venezia til Catanzaro sem leikur í C-deildinni þar í landi. Ástæðan var eflaust sú að Venezia hafði ákveðið að sækja fyrrverandi leikmann Manchester United, Nani, til að krydda upp á sóknarleikinn. 15.1.2022 10:30
Stríðsmennirnir tömdu Nautin og Morant mátti sín lítils gegn Dončić Alls fóru níu leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þar ber helst að nefna stórsigur Golden State Warriors á Chicago Bulls sem og stórsigur Dallas Mavericks á Memphis Grizzlies. 15.1.2022 10:01
Aubameyang ekki með Gabon vegna hjartavandamála Pierre-Emerick Aubameyang var ekki með Gabon í leik liðsins gegn Ghana í Afríkukeppninni í gær vegna hjartavandamála. Það kom ekki að sök þó Gabon hafi verið án síns besta leikmanns en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. 15.1.2022 09:30
Óvæntur áhugi á enskum leikmönnum: „Líkamlega sterkir og vanir að spila af mikilli ákefð“ Lið ítölsku úrvalsdeildarinnar hafa að undanförnu sótt enska leikmenn í meira magni en gengur og gerist. Sem stendur eru fimm enskir leikmenn á mála hjá ítölskum stórliðum, þar af þrír í Rómarborg. 15.1.2022 09:00