Chelsea neytt til að stækka búningsklefann vegna kvartana mótherja Enska knattspyrnufélagið Chelsea þarf að stækka útiklefann á Brúnni, heimavelli sínum, eftir kvartanir frá bæði Liverpool og Brighton & Hove Albion. 27.1.2022 07:00
Dagskráin í dag: Landsleikur í E-fótbolta, ÍR mætir í Keflavík og nóg af golfi Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. 27.1.2022 06:01
Hollenska markamaskínan hefur rætt við bæði PSG og Barcelona Hollenska markadrottningin Vivianne Miedema hugsar sér til hreyfings. Hún spilar í dag með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni en hefur rætt við bæði París Saint-Germain og Evrópumeistara Barcelona. 26.1.2022 23:31
Qvist til liðs við Breiðablik Danski varnarmaðurinn Mikkel Qvist hefur samið við Breiðablik og mun leika með liðinu næsta sumar. Hann kemur til félagsins frá AC Horsens í Danmörku. 26.1.2022 23:00
Vítaspyrnudrama er Egyptaland og Miðbaugs-Gínea voru síðust inn í átta liða úrslit Sextán liða úrslit Afríkukeppninnar í knattspyrnu kláruðust í kvöld. Seint verður sagt að um opna og mikla markaleiki hafi verið að ræða en báðir leikir kvöldsins enduðu með markalausu jafntefli. Réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. 26.1.2022 22:21
Umfjöllun: Danmörk - Frakkland 29-30 | Takk fyrir ekkert Danmörk leiddi nær allan leikinn gegn Frakklandi til þess eins að tapa með eins marks mun og kosta Ísland þar með sæti í undanúrslitum Evrópumótsins í handbolta. Takk fyrir ekkert Danmörk. 26.1.2022 21:45
Jafnt hjá Hollandi og Króatíu Holland og Króatía gerðu jafntefli í lokaleik sínum í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta í kvöld. Lokatölur leiksins 28-28. 26.1.2022 18:45
Íslendingar munu styðja Dani í kvöld: „Vi er røde vi er hvide!“ Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður Íslands, mun styðja frændur vora Dani er þeir mæta Frökkum á EM í handbolta í kvöld. Það á einnig við um Twitter-samfélagið hér á landi. 26.1.2022 18:30
Jóhannes Karl nýr aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla | ÍA í þjálfaraleit Jóhannes Karl Guðjónsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann hefur störf nú þegar og hefur sagt starfi sínu hjá ÍA lausu. 26.1.2022 17:50
Twitter: Móðurlegar tilfinningar í garð Viktors Gísla og stoðsendingavélin úr Pizzabæ Ísland vann magnaðan tíu marka sigur á Svartfellingum í síðasta leik liðsins í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta. Sigurinn þýðir að Ísland þarf nú að treysta á Dani til að eiga möguleika á að komast í undanúrslit mótsins. 26.1.2022 16:40