Besta-spáin 2022: Mátaðir eftir valdataflið Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Keflavík 11. sæti Bestu deildar karla í sumar. 5.4.2022 10:01
Rooney telur Man. United þurfa yngri og hungraðri leikmenn en Ronaldo Wayne Rooney, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir sitt gamla félag þurfa yngri og hungraðri leikmenn en Cristiano Ronaldo til að lyfta því upp úr þeim öldudal sem það virðist fast í. 5.4.2022 09:01
Dagskráin í dag: Átta liða úrslit í Meistaradeild Evrópu og úrslitakeppnin í Subway-deild karla hefst Það eru sannkallaðir stórleikir á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag. Átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu fara af stað með stórleik Manchester City og Atlético Madríd. Þá fer úrslitakeppni Subway-deildar karla í körfubolta af stað með tveimur stórleikjum. 5.4.2022 06:00
Klopp segir að illa hafi verið komið fram við kvennalið Liverpool Jürgen Klopp, þjálfari karlaliðs Liverpool, hrósaði kvennaliði félagsins fyrir að vinna sér sæti í efstu deild. Hann segir þó góða ástæðu fyrir því að þetta sigursæla félag hafi fallið um deild, það var einfaldlega ekki komið nægilega vel fram við liðið. 4.4.2022 23:30
Hrósaði bæði leikmönnum og stuðningsfólki Palace eftir magnaðan sigur „Ég er mjög stoltur. Við spiluðum frábærlega. Við vörðumst vel og nýttum færin okkar,“ sagði sigurreifur Patrick Vieira eftir magnaðan 3-0 sigur Crystal Palace á Arsenal fyrr í kvöld. 4.4.2022 23:01
Höttur 2-0 yfir gegn Fjölni | Jafnt hjá Álftanesi og Sindra Úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta hélt áfram í kvöld. Höttur er komið 2-0 yfir gegn Fjölni eftir öruggan sigur i Dalhúsum í kvöld. Þá jafnaði Álftanes metin gegn Sindra. 4.4.2022 22:45
KR lætur Manderson fara fyrir úrslitakeppnina KR hefur ákveðið að láta Bandaríkjamanninn Isaiah Manderson fara áður en úrslitakeppni Subway-deildar karla í körfubolta hefst. KR mætir Njarðvík í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. 4.4.2022 21:30
Vieira gerði fyrrum liði sínu skráveifu í baráttunni um Meistaradeildarsæti Lærisveinar Patrick Vieira í Crystal Palace gerðu sér lítið fyrir og pökkuðu Arsenal saman í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni, lokatölur 3-0. 4.4.2022 21:05
Milan á toppinn eftir markalaust jafntefli AC Milan er komið á topp Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, eftir markalaust jafntefli við Bologna í kvöld. 4.4.2022 20:50
Jafntefli hjá Birki og félögum | Upp og niður í Svíþjóð Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Adana Demirspor er liðið gerði markalaust jafntefli við Hatayspor í tyrknesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Íslendingarnir í Svíþjóð áttu mismunandi gengi að fagna í kvöld. 4.4.2022 20:30