Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar 26. september 2026 19:32 Dagana 8. – 15. mars 2023 fór fram kosnining um embætti formanns VR. Kosið var á milli Ragnars Þór Ingólfssonar sem gegnt hafði formennsku í félaginu í sex ár og Elvu Hrannar Hjartardóttur sérfræðings á skrifstofu VR. Ragnar Þór var endurkjörinn með 57 prósentum atkvæða gegn 39 prósentum atkvæða Elvu Hrannar. Í kosningabaráttunni kom fram að Elva Hrönn, að eigin sögn, legði starf sitt á skrifstofu VR að veði með því að bjóða sig fram. Í frétt á Vísi hinn 9. mars 2023, daginn eftir að kosningin hófst, er vitnað í viðtal við Elvu Hrönn í þættinum Dagmálum á Morgunblaðinu. Vísir vitnar beint í Elvu Hrönn: „Ég er að vinna með frábæru samstarfsfólki. Þetta er svo margt sem ég er að missa ef ég vinn ekki kosningarnar. En það er líka margt sem ég fæ ef ég vinn. Ég fæ þennan „platform“ til að gera mitt og gefa meira af mér. Í samtali mínu við mína stjórnendur var það niðurstaðan að það yrði best að ég færi í uppsögn ef að þessu vindur ekki fram eins og ég vona,“ segir Elva. Þarna vísar Elvar Hrönn í samtal sitt við „stjórnendur“ VR, sem voru að hennar sögn síðar, að minnsta kosti Stefán Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri VR og ef til vill aðrir ónafngreindir stjórnendur á skrifstofunni. En ekki Ragnar Þór sem var kjörinn formaður af félagsfólki og ekki meðal stjórnenda á skrifstofunni. Niðurstaða hennar og annarra en Ragnars Þórs „Andrés Magnússon, stjórnandi þáttarins (Dagmála), spyr þá hvort það sé eðlilegt í svona baráttu að þeir sem bjóði sig fram gegn sitjandi formanni missi starfið tapi þeir kosningunni,“ segir í frétt Vísis hinn 9. mars 2023. Og Elvar Hrönn svarar: „Ég held að í mörgum öðrum tilfellum væri þetta ekki raunin. En þegar þú ert að tala um svona ofboðslega áberandi persónur og leikendur í verkalýðshreyfingunni sem standa fyrir ákveðna hluti og fara fram með ákveðnum hætti þá er þetta niðurstaðan. Þetta veltur á því hver er í formannssætinu hverju sinni,“ segir Elva. Þarna fer ekki milli mála að Elva Hrönn sjálf greinir frá því á meðan á kosningu til formanns stendur yfir að þetta hafi verið niðurstaða samtals hennar við stjórnendur á skrifstofu VR. Ragnar Þór er hvergi nefndur í þessu samhengi. Elva Hrönn tjáði sig líka um þetta mál á sérstakri síðu um formannskjör hennar á Reddit á meðan formannskosningin stóð yfir: „Hæ, hæ það sem ég hef alltaf sagt og er satt er að í samtali mínu við stjórnendur (Ragnar er ekki stjórnandi minn heldur kjörinn fulltrúi) var þetta niðurstaðan. Það er, að ef ég myndi ekki vinna kosningarnar yrði mér í raun ekki stætt í starfi og því færi ég á uppsagnarfrest frá 1. apríl. Þetta er ekki mín ákvörðun heldur niðurstaða sem kom út úr samtali við framkvæmdastjóra. Ég hef aldrei talað um að Ragnar eða nokkur annar í VR hafi hótað mér einu né neinu,“ sagði Elva Hrönn á Reddit. Órökstuddar fullyrðingar um óþol eða hatur Hvers vegna Elva Hrönn kýs nú rúmlega þremur árum síðar þegar Ragnar Þór og eiginkona hans hafa verið sett í vægast sagt ósmekklegt samhengi við afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr embætti mennta- og barnamálaráðherra, að koma fram með ásakanir um að Ragnar Þór hafi hrakið hana úr starfi hjá VR er með öllu óskiljanlegt. Nema þá til að svala frumstæðum hefndarþorsta sínum. Í frétt Vísis í dag 26. september 2026 sem byggir á Facebook færslu Elvu Hrannar segir í inngangi fréttarinnar: „Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi frambjóðandi til formanns VR, sakar Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra (ekki þáverandi formann VR, mitt innskot), um að hafa hrakið hana úr starfi eftir að þau tókust á um formannsembætti VR árið 2023. Hún gleymi aldrei svip Ragnars þegar hún tilkynnti honum um framboðið en hatur hafi skinið úr andliti hans.“ Það er ekkert annað, Ragnar Þór er ekki bara sakaður um að hafa hrakið hana úr starfi, sem hún hafði sjálf sagt árið 2023 að hann hafi ekki gert, heldur hafi hatrið skinið af andliti hans. Og í frétt Vísis í dag er tíundað upp úr Facebook færslu Elvu Hrannar hvers vegna hún hafi boðið sig fram til formannsembættis í VR fyrir rúmum þremur árum: „Nokkrar ástæður voru fyrir framboðinu, meðal annars hafi hún verið hvött til þess af kollegum og stjórnmálafólki en lengi vel var Elva Hrönn meðlimur í VG. Þá taldi hún að hún hefði allt sem þurfti til að gegna embættinu af alúð, eldmóði og virðingu,“ segir Vísir í dag og vitnar síðan beint í Facebook færslu Elvu Hrannar: „Ég var vel að mér í málum og tilbúin að læra meira og ná tökum á starfinu með öflugt og gott fólk mér við hlið. Í þriðja lagi hafði þáverandi formaður (og núverandi ráðherra) þróað með sér óþol?/hatur? á mér. Honum fannst ég „of pólitísk“ (heyrði ég úr innsta koppi) og sá í mér andstæðing – og því vissara að losna við mig. Það var ekki bara mín upplifun,“ skrifar Elva í færslunni. Elva Hrönn bauð sig semsagt meðal annars fram vegna „óþols eða haturs“ sitjandi formanns á henni. „Honum fannst ég „of pólitísk“ (heyrði ég úr innsta koppi) og sá í mér andstæðing – og því vissara að losna við mig. Það var ekki bara mín upplifun,“ skrifar Elva í færslunni. En hún hafði að sögn Vísis verið virk innan Vinstri grænna. Þarna stendur ekki steinn yfir steini. Í örðu orðinu segir hún fyrir formannskjörið að það hafi verið niðurstaða samtals hennar við framkvæmdastjóra og ef til vill fleiri stjórnendur á skrifstofu VR (en ekki Ragnar Þór) að hún léti af störfum ef hún tapaði kosningunni, en í hinu orðinu hafi formanninum „þótt hún of pólitísk (heyrt úr innsta koppi) og séð í henni andstæðing sem vissara væri að losna við.“ Formaður VR hataði hana semsagt og vildi losna við hana og þess vegna bauð hún sig fram gegn honum. Það vill svo til að rétt fyrir formannskjörið í VR í mars 2023 var ég fréttamaður á Sýn og fékk þá báða frambjóðendur í Pallborðið til að ræða áherslur þeirra. Í því um klukkustundarlöngu viðtali minntist Elva Hrönn hvergi á meint óþol eða hatur Ragnars Þórs í hennar garð. Þar var farið yfir helstu málefni og áherslur þeirra beggja eins og sjá má með því að smella á hlekkinn hér. Eins og allir þeir sem hafa boðið sig fram til embætta og tapa kosningu vita getur það verið sárt að tapa. Það er hins vegar undarlegt að koma fram á völlinn þremur árum eftir að hafa tapað kosningu og tala um aðdraganda þeirra kosninga og eftirmál með allt öðrum hætti en sama manneskja gerði þegar kosningin fór fram. Þarna kraumar undir þorsti í hefnd. Höfundur upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins og fyrrverandi fréttamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heimir Már Pétursson Mest lesið Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun