Stefán eftir enn einn titil Fram: Hefði líka verið mjög stoltur hefðum við ekki unnið „Ég er að vísu alltaf svona brúnn,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Íslandsmeistara Fram kíminn er hann mætti í sett hjá Seinni bylgjunni eftir leik. Svava Kristín Grétarsdóttir, þáttastjórnandi, talaði um hvað það væri létt og bjart yfir Stefáni sem var fljótur að svara á sinn einstaka hátt áður en hann ræddi leikinn. 30.5.2022 10:31
Áfram skorar Ísak Snær, óvæntar hetjur og markasúpur í Safamýri og Kaplakrika Það fór heil umferð fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær, sunnudag. Hér að neðan má sjá öll mörk umferðarinnar en af nægu er að taka. Viktor Örlygur Andrason reyndist hetja Íslands- og bikarmeistara Víkings gegn KA á meðan Ísak Snær Þorvaldsson getur ekki hætt að skora. 30.5.2022 09:31
Horfa til Katalóníu í leit að arftaka Mané Jürgen Klopp horfir til Katalóníu í leit að arftaka Sadio Mané sem virðist vera á leið frá Liverpool í sumar. 30.5.2022 09:00
Tók við liðinu á botni B-deildar og skilaði því upp í deild þeirra bestu Nottingham Forest vann Huddersfield Town 1-0 í úrslitaleik umspils ensku B-deildarinnar og er þar með komið upp í ensku úrvalsdeildina eftir 23 ára bið. Það sem gerir afrek Forest enn merkilegra er að liðið var á botni B-deildarinnar þegar Steve Cooper tók við liðinu í september síðastliðnum. 30.5.2022 08:31
Boston Celtics í úrslit eftir spennutrylli Boston Celtics vann Miami Heat með fjögurra stiga mun í oddaleik liðanna í úrslitum Austurdeildar NBA. Lokatölur 96-100 í Miami og Boston Celtics því á leið í úrslit NBA-deildarinnar í fyrsta sinn síðan 2011. 30.5.2022 08:00
Thibaut Courtois, Edwin van der Sar og Oliver Kahn Thibaut Courtois reyndist hetja Real Madríd er liðið vann sinn fjórtánda Evróputitil um helgina. Courtois lék óaðfinnanlega og var í kjölfarið kosinn maður leiksins af UEFA sem þýðir að hann er nú kominn á einkar fámennan lista. 30.5.2022 07:31
KR og Þór/KA með stórsigra | Stjarnan marði FH Þremur leikjum af fimm í Mjólkurbikar kvenna í fótbolta er nú lokið. KR vann 6-0 stórsigur á Akranesi, Þór/KA vann 6-0 sigur á Haukum og Stjarnan vann nauman 1-0 útisigur á FH. 28.5.2022 16:30
Jafnt hjá Ingibjörgu og Selmu Sól Íslendingalið Vålerenga og Rosenborg gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í kvöld. 28.5.2022 16:00
Sjö íslensk mörk er Magdeburg flaug í úrslit Magdeburg er komið í úrslit Evrópudeildarinnar í handbolta eftir fimm marka sigur á Nexe Našice frá Króatíu, lokatölur 34-29 Íslendingaliðinu í vil. Alls litu sjö íslensk mörk dagsins ljós í dag. 28.5.2022 15:30
Willum Þór á skotskónum og BATE enn ósigrað Frábært gengi BATE Borisov í hvít-rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta heldur áfram. Willum Þór Willumsson var á skotskónum er liðið vann þægilegan 3-0 sigur á botnliði Dynamo Brest. 28.5.2022 14:31