Hlín skoraði tvö í stórsigri Íslendingalið Kristianstad byrjar gríðarlega vel í sænska bikarnum en liðið vann sjö marka sigur á Lidköping, lokatölur 8-1. Hlín Eiríksdóttir og Katla Tryggvadóttir voru í byrjunarliði Kristianstad. Sú fyrrnefnda skoraði tvívegis. 10.3.2024 21:16
Ekkert fær Leverkusen stöðvað Bayer Leverkusen vann enn einn leikinn í þýsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu þegar liðið tók á móti Wolfsburg í kvöld. Lokatölur 2-0 og Leverkusen með tíu stiga forystu á toppi deildarinnar. 10.3.2024 21:01
Martin skilaði sínu í naumum sigri Alba Berlín vann eins stigs sigur á Rostock Seawolves í efstu deild karla í þýska körfuboltanum, lokatölur 76-75. Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson skilaði sínu í liði Berlínar. 10.3.2024 20:01
Real ekki í vandræðum með drengina hans Benitez Real Madríd vann Celta Vigo 4-0 í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Rafa Benítez, fyrrverandi þjálfari Liverpool og Real Madríd meðal annars, stýrir nú Celta Vigo. 10.3.2024 19:45
Veit allt um það hversu erfitt er að spila á Anfield „Við byrjuðum vel en þeir eru með ótrúlegt lið. Við áttum okkar augnablik, þeir áttu sín. Það er erfitt að spila á móti þeim og við tökum stiginu,“ sagði Pep Guardiola eftir 1-1 jafntefli Manchester City gegn Liverpool fyrr í dag. 10.3.2024 19:35
Aue eygir enn von | Bjarki Már markahæstur Lærisveinar Ólafs Stefánssonar í Aue unnu gríðarlega mikilvægan sigur í þýsku B-deildinni í handbolta í dag. Liðið er sem fyrr á botni deildarinnar en á nú raunhæfa möguleika á að halda sér í deildinni. Þá var Bjarki Már Elísson markahæstur þegar Veszprém vann 18. leikinn í röð í Ungverjalandi. 10.3.2024 19:16
Juventus missteig sig á heimavelli Juventus náði aðeins jafntefli gegn Atalanta á heimavelli í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Lokatölur 2-2. 10.3.2024 19:10
„Miðað við frammistöðuna í síðari hálfleik áttum við skilið að vinna“ Virgil Van Dijk, fyrirliði Liverpool, sagði 1-1 jafntefli sinna manna gegn Englands-, Evrópu og bikarmeisturum Manchester City heldur súrsætt en fyrirliðinn vildi öll þrjú stigin á Anfield í dag. 10.3.2024 18:31
Jafntefli niðurstaðan í stórskemmtilegum leik á Anfield Liverpool og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. 10.3.2024 17:50
Orri Steinn byrjaði þegar FCK skaut sér á toppinn Danmerkurmeistarar FC Kaupmannahafnar lögðu Íslendingalið Lyngby 4-0 í efstu deild dönsku knattspyrnunnar. Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði heimamanna á meðan Andri Lucas Guðjohnsen var í byrjunarliði Lyngby. Hvorugur framherjinn komst hins vegar á blað í dag. 10.3.2024 17:00