„Ég fór að gráta með henni“ Cynthia Pétursdóttir fékk að fara heim til Grindavíkur í miklu stress í dag og sækja dót. Þar á meðal myndir af fjölskyldunni og nokkrar flíkur. Hún var tíu mínútur á svæðinu og fékk aðstoð frá björgunarsveitarfólki. Ein hélt í höndina á henni á meðan hún grét á leiðinni út úr íbúðinni. 15.11.2023 15:18
Sumir fái endurtekið að fara meðan aðrir bíði endalaust Kristín Arnberg íbúi í Grindavík er hluti af fimmtán manna fjölskyldu sem dvelur í sumarbústað í Grímsnesi. Þeim hefur reynst erfitt að fá að komast að heimili sínu sem er á hættusvæði. Hún er með hnút í maganum varðandi framtíðina. 15.11.2023 14:47
Aldrei séð slíkar skemmdir með eigin augum Erlendir fréttamenn við Grindavík sem fréttastofa tók tali segjast aldrei hafa orðið vitni að slíkum atburðum áður. Mikill áhugi sé á atburðunum utan landsteinanna. Bæta mætti upplýsingagjöf. 15.11.2023 14:21
„Þetta tekur mjög á“ Anna Lára Guðnadóttir freistar þess að komast inn til Grindavíkur að sækja muni fyrir systur sína. Hún er kvíðin og stressuð að sjá hvert ástandið á húsinu er. Systir hennar fór út úr húsinu allslaus á föstudag. 15.11.2023 12:59
Blöskrar skipulagsleysi: „Þetta mun aldrei verða samt aftur“ Jón Pálmar Ragnarsson og Helga Rut Hallgrímsdóttir, íbúar í Grindavík, hafa reynt fjórum sinnum að ná í nauðsynjar á heimili sitt í bænum án árangurs. Þau gefa skipulagi viðbragðsaðila falleinkunn. 15.11.2023 11:36
Íhuga að banna útflutning á Ozempic Þýska lyfjaeftirlitið íhugar að banna útflutning á þyngdarstjórnunar-og sykursýkislyfinu Ozempic til þess að koma í veg fyrir að birgðir af lyfinu klárist í landinu. 15.11.2023 11:02
Eurovision-keppnin komin með varanlegt slagorð Eurovision söngvakeppnin er komin með varanlegt slagorð í fyrsta sinn. Slagorðið er „Sameinuð af tónlist“ (e. United By Music). Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU). 15.11.2023 10:00
Mikilvægast að tryggja Grindvíkingum festu næstu mánuði Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Grindvíkingur, segir mikilvægast að íbúum bæjarins sé tryggð festa næstu mánuði og að hlúð sé að andlegri heilsu þeirra. Ótækt sé að íbúar þurfi að hafa fjárhagslegar áhyggjur á tímum sem þessum. 15.11.2023 09:08
Með fimm manna fjölskyldu inni á systur sinni og reiður stjórnvöldum Grindvíkingur sem gistir með fimm manna fjölskyldu sína hjá systur sinni í Keflavík segir að sér þyki viðbrögð stjórnvalda við jarðhræringum í Grindavík máttlaus. Ekki sé haldið nógu vel utan um Grindvíkinga, sem margir hverjir geti ekki hugsað sér að snúa aftur í bæinn en sitji uppi með verðlausar eignir í fanginu. 14.11.2023 22:00
Ósáttur við skipulagið: Súrt að vera snúið við í heimreiðinni Sigurður Kristinsson og Kristjana Bjarklind Sigurðardóttir voru mætt til Grindavíkur til að sækja verðmæti þegar rýming hófst. Þau voru mætt um eitt leytið í dag. 14.11.2023 16:38