Segir rangt að ásakanir um launaþjófnað séu „kolvitlausar“ Eigandi veitingastaðanna Bambus og Flame segir ásakanir um stórfelldan launaþjófnað „kolvitlausar“ og að öll laun séu samkvæmt kjaraskrá. Forstöðumaður kjaradeildar Fagfélaganna segir það ekki rétt og starfsfólk hafi fengið minna en helming þeirra launa sem þeim bar. 26.8.2022 11:56
Rússneskir grínistar blekktu Ian McKellen í spjall við Zelenskí Breski leikarinn Ian McKellen greindi frá því í gær að tveir rússneskir grínistar, sem hugðust notfæra sér leikarann, hafi sent honum boð um einkasamtal við Volodímír Zelenskí, Úkraínuforseta. Þegar samtalið við forsetann hófst runnu tvær grímur á leikarann og lagði hann á þá. 25.8.2022 22:03
Hvetur ráðherra til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi Umboðsmaður barna hefur sent innviðaráðherra bréf þar sem hún hvetur hann til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi og setja fjármagn í uppbyggingu vegarins. Ástand vegarins valdi skólabörnum sem ferðist um veginn vanlíðan og kvíða og geti ógnað öryggi þeirra. 25.8.2022 16:53
Dýralæknar mátu að aflífa þyrfti Kasper eftir að hann beit mann „mjög illa“ í hendina Lögregla segir að hundur fjölskyldu á Siglufirði hafi bitið gamlan mann „mjög illa“ í hendina að ástæðulausu, hann hafi verið ógn við nágranna sína „í langan tíma“ og að dýraeftirlitsmaður og dýralæknar hafi metið það svo að aflífa þyrfti hundinn. 25.8.2022 15:18
Lét höggin dynja á fangavörðum og fanga Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir þrjár líkamsárásir sem áttu sér stað í fangelsinu á Hólmsheiði, tvær gegn fangavörðum og eina gegn samfanga sínum. 25.8.2022 11:57
Lögreglan óskar eftir vitnum vegna alvarlegs umferðarslyss Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að alvarlegu umferðarslysi sem varð milli fólksbifreiðar og rafmagnshlaupahjóls á gatnamótum Laufbrekku og Hjallabrekku í Kópavogi í gær, miðvikudaginn 24. ágúst. 25.8.2022 10:32
Hugi Halldórsson nýr markaðsstjóri Ísorku Hugi Halldórsson, best þekktur sem Ofur-Hugi, hefur hafið störf sem markaðsstjóri hjá Ísorku, rafhleðslufyrirtæki, en hann kemur þangað frá markaðsdeild Play. 25.8.2022 09:53
Stallone lét húðflúra hund yfir eiginkonuna sem sótti um skilnað Jennifer Flavin hefur óskað eftir skilnaði við Sylvester Stallone, leikarann kunnuga, eftir 25 ára hjónaband þeirra. Grunsemdir vöknuðu í gær um skilnað hjónanna þegar það birtist mynd af Stallone á netinu þar sem verið var að húðflúra hund yfir tattú hans af Flavin. 24.8.2022 17:49
Fyrrverandi kærasta John McAfee segir hann hafa sviðsett dauða sinn Í nýrri heimildarmynd um líf tæknimógúlsins John McAfee sem kemur út á Netflix í dag heldur fyrrverandi kærasta hans því fram að hann hafi sviðsett dauða sinn og sé enn á lífi í Texas. Á sama tíma berst ekkja hans áfram fyrir því að fá að sjá lík McAfee sem hefur legið í líkhúsi í Barcelona í meira en ár. 24.8.2022 16:06
Ekki hægt að rukka neytendur til að vernda framleiðslu sem er ekki lengur til Félag atvinnurekenda hvetur stjórnvöld til að afnema 76 prósent toll á franskar kartöflur í ljósi þess eini íslenski framleiðandi franskra kartafla, Þykkvabæjar, sé hættur framleiðslu á vörunni. Ekki sé hægt að rukka neytendur til að vernda framleiðslu sem er ekki lengur til. 24.8.2022 14:17