Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Él og slyddu­él í dag og önnur lægð á morgun

Í dag má búast við suðlægri átt og fimm til 13 metrum á sekúndu og él eða slydduél, en lengst af að það verði þurrt norðaustanlands framan af degi. Eftir hádegi gengur í suðaustan 13 til 20 metra á sekúndu og bætir í él um tíma á austanverðu landinu.

Ógnaði fólki með hníf og beitti svo lög­reglu­mann of­beldi

Einn var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í nótt eftir að hafa ógnað fólki með hnífi. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann beitti svo lögreglumann ofbeldi. Samkvæmt dagbók lögreglu eru bæði málin til rannsóknar og í ferli.

Þó­nokkuð margir búnir að stytta leikskóla­vist á föstu­dögum

Fimmtán prósent foreldra eða forráðafólks leikskólabarna í Reykjavík hafa breytt dvalartíma barna sinna vegna innleiðingar Reykjavíkurleiðarinnar. Skrifstofustjóri á leikskólasviði Reykjavíkurborgar segir marga stytta dvalartíma á föstudögum. Það sé ánægjulegt hversu margir hafa þegar brugðist við.

„Ég tel þetta ekki vera á­kveðna höfnun á Alexöndru“

Efstu tíu sæti lista Pírata í Reykjavík verða staðfest í dag og listinn kynntur eftir helgi. Prófkjöri lauk í gær. Kristinn Jón Ólafsson, nýr oddviti flokksins, segir spennandi tíma framundan. Ekki liggur fyrir hvort Alexandra Briem þiggi eða hafni öðru sæti listans en Kristinn segir að þó svo að niðurstaða sé bindandi geti fólk beðið um að vera fært neðar eða hafnað sæti.

Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður

Rekstur Orkuveitunnar skilaði 11,5 milljarða króna hagnaði á árinu 2025. Það er liðlega tveimur milljörðum betri niðurstaða en árið 2024, samkvæmt tilkynningu, þrátt fyrir áfall hjá Norðuráli og samdrátt í tekjum hitaveitunnar.

Hafa ekki náð á 26 Ís­lendinga í Mið-Austurlöndum

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Einn drengur í með­ferð á nýju með­ferðar­heimili

Meðferðarheimilið Lækjarbakki hóf störf í nýju húsnæði í Gunnarsholti og tók á móti sínu fyrsta barni í gær. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að opnunin marki mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma við vímuefnavanda. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu.

Sjá meira