Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

James Van Der Beek látinn

Leikarinn James Van Der Beek, stjarna Dawson's Creek og sex barna faðir, er látinn 48 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Leikarinn, sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í Dawson's Creek og Varsity Blues, lést eftir baráttu við ristil- og endaþarmskrabbamein á þriðja stigi.

Stjórn vill greiða fimm­tán milljarða í arð

Stjórn Arion banka mun leggja það til á aðalfundi í mars að greiddur verði út arður sem nemur 11,5 krónum á hlut, sem samsvarar um 15 milljarða arðgreiðslu. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 30,6 milljarðar króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna árið 2024.

„Þjóðin syrgir með ykkur“

Mark Carney forsætisráðherra Kanda segir alla þjóðina syrgja með íbúum Tumbler Ridge í Kanada. Tíu eru látin í kjölfar skotárásar í framhaldsskóla í gær. Ástæða skotárásar og tengsl geranda og fórnarlamba hafa ekki verið gefin upp. Fram hefur komið að árásarmaður sé kona en það hefur ekki verið staðfest. 

Mínútuþögn á minningarleik um Pat­rek Frey

Mínútuþögn var í upphafi sérstaks íshokkíleiks í kvöld sem er spilaður til minningar um Patrek Frey Sveinsson, sautján ára dreng sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. Leikurinn hófst klukkan 19.45 í Skautahöllinni í Laugardal og var húsfyllir í höllinni. 

„Að­ferða­fræðin við þetta mál er al­veg galin“

Þingflokksformaður Flokks fólksins segir málflutning Sjálfstæðismanna um breytingar á örorku- og ellilífeyrisbótum sorglegan. Breytingunum sé aðeins ætlað að stöðva kjaragliðnun sem hafi átt sér stað síðustu ár. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir aðferðarfræðina við breytingarnar galna.

Úkraínu­menn á Ís­landi minntust Kjartans Sæ­vars

Úkraínumenn á Íslandi komu saman til minningarstundar í Maríukirkju á sunnudag um Kjartan Sævar Óttarsson sem lét lífið í innrásarstríði Rússa í Úkraínu.  Fjölskylda Kjartans var viðstödd. 

FBI birtir myndir af grímu­klæddum manni við heimili Guthrie

Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur birt myndir af grímuklæddum einstaklingi í tengslum við leit þeirra að móður fréttaþulunnar Savannah Guthrie. Í tilkynningu með myndunum kemur fram að yfirvöld reyni nú að bera kennsl á einstaklinginn, sem þau segja hafa verið vopnaðan.

Segja gögn um verk­taka­greiðslur tekin úr sam­hengi

Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi.

Af­gerandi sigur stjórnar­flokkanna í Japan

Útlit er fyrir að stjórnarflokkar Japans, undir forystu Sanae Takaichi forsætisráðherra, hafi náð miklum meirihluta í neðri deild japanska þingsins.  Samkvæmt nýjustu tölum hefur samsteypustjórn Takaichi unnið 352 af 465 sætum þingsins og þar af hefur flokkur hennar unnið 316 sæti.

Sjá meira