Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Líklegt er að svifryksmengun minnki á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi í dag þegar fer að snjóa. Styrkur svifryks hefur mælst langt yfir heilsuverndarmörkum á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Í hádeginu í gær sýndi loftmælistöð á Grensásvegi að styrkur þess nam 178,9 míkrógrömmum á rúmmetra sem er rúmlega þrefalt yfir heilsuverndarmörkum. 17.2.2026 07:41
Borðaði „bara“ 30 bollur á bolludaginn Landsmenn hámuðu í sig yfir milljón bollur á bolludaginn. Bjarki Sigurðsson, fréttamaður okkar, gætti sér á allavega tíu þeirra samkvæmt nýjustu tölum og hitti annan bolluunnanda í kvöldfréttunum sem hafði borðað 29 og ætlaði að hafa þær fleiri. 17.2.2026 07:27
„Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Helgi Guðnason, forstöðumaður í Fíladelfíu í Reykjavík, segir samstarfið við Samhjálp hafa gengið vonum framar eftir að kaffistofan fékk tímabundið skjól í húsnæði kirkjunnar. Hann viðurkennir að það hafi verið töluverð óvissa en hafi alltaf verið sannfærður um að það rétta í stöðunni væri að hjálpa. 17.2.2026 06:30
Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Það er mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar, klukkan er tíu og það er nýbúið að opna. Það er matarlykt og kliður í loftinu. Það er verið að bera fram morgunmat og setið við flest borð. Kaffistofan er tímabundið staðsett í sal Fíladelfíusöfnuðarins, á neðri hæð í Hátúni. Það er bjart inni og líklega um 40 til 50 manns í salnum. 16.2.2026 06:30
Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Færð á jökla eru miklu erfiðari vegna mikillar rýrnunar. Víða eru að koma í ljós sprungusvæði sem geta verið hættuleg ferðamönnum og þeim sem sinna mælingum. Afkomumælingum seinkaði verulega vegna slæmrar færðar og aðgengis. Eins slæmar og mælingar voru fyrir síðasta vetur er útlitið ekkert betra í ár. Hrafnhildur Hannesdóttir, fagstjóri jöklarannsókna hjá Veðurstofu Íslands, hefur miklar áhyggjur af bæði horfum jöklanna og færðinni á þá. 15.2.2026 19:01
Úr verslunarrekstri á „fínni útgáfuna“ af ítalskri knæpu Hjónin Einar Guðmundsson og Aron Freyr Heimisson hafa síðustu fimm ár rekið saman verslunina Mikado samhliða því að sinna hönnunarverkefnum. Þeir hafa nú bætt við sig hönnun og rekstri veitingastaðar í Hafnarstræti, , Osteria Bari, ásamt þremur öðrum 15.2.2026 13:00
Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Færri strengdu áramótaheit í ár en síðustu tvö ár. 17 prósent svarenda könnunar Prósents segjast hafa strengt áramótaheit en 83 prósent gerðu það ekki. Líklegra er að fólk strengi slík heit eftir því sem yngra það er. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Prósents 13.2.2026 10:49
Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda. Leikskólarnir eru Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði. Foreldrar sem hafa valið leikskólana í umsókn eru hvattir til að breyta umsókn. Börn sem eru skráð í Hagaborg og Vonagerði verða færð annað. 13.2.2026 10:28
Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti í fyrradag, með sex greiddum atkvæðum gegn einu, stækkun á friðlendi í Gróttu og Seltjarnar. Bæjarstjóri telur tillögu um friðlýsingu ganga of langt og segir afar skiptar skoðanir meðal íbúa. Unnið hefur verið að stækkun friðlendisins í um sex ár. Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í málinu og bæjarstjórinn greiddi einn atkvæði gegn tillögunni. 13.2.2026 06:47
Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið. 12.2.2026 23:01