Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Móðir ungs manns sem varð fyrir lífshættulegri stunguárás í miðborginni í vor segir nýfallinn dóm í málinu skammarlegan. Hún lítur á árásina sem manndrápstilraun og skorar á saksóknara að áfrýja til Landsréttar. Við fjöllum um málið og ræðum við móðurina í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 28.8.2022 18:06
Hádegisfréttir Bylgjunnar Hádegisfréttir Bylgjunnar verða á sínum stað klukkan 12 og er hægt að hlusta á þær í spilaranum hér fyrir neðan. 28.8.2022 11:57
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsvarsmenn nemendafélags Fjölbrautarskóla Suðurlands eru ósáttir við hvernig stjórnendur hafa tekið á meintu kynferðisbroti innan veggja skólans. Skólameistarinn hefur beðið nemendur að vanda sig í umræðum um málið. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 27.8.2022 18:09
Fluttur með þyrlu eftir að hann slasaðist í hjólreiðakeppni Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti slasaðan hjólreiðamann á sjúkrahús rétt eftir hádegi í dag. Maðurinn slasaðist í hjólreiðakeppni á Úlfarsfelli í Mosfellsbæ. 27.8.2022 14:52
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Verkefnastjóri hjá ASÍ kallar eftir harðari viðbrögðum við launaþjófnaði eftir að eigandi tveggja veitingastaða í Reykjavík var sakaður um stórfelld svik við starfsfólk. Málum sem þessum fari fjölgandi en bara í þessum mánuði hefur ASÍ tilkynnt þrjú mál til mansalsdeildar lögreglu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 26.8.2022 18:09
Snýst ekki aðeins um að ríða hratt heldur ríða rétt Sex knapar, fjórir erlendir og tveir íslenskir, keppa nú í þolreiðum á hálendi Íslands - á baki íslenska hestsins. Skipuleggjendur þvertaka fyrir að velferð hestanna sé stefnt í hættu með fyrirkomulagi keppninnar; hún snúist ekki aðeins um að ríða hratt heldur ríða rétt. 26.8.2022 11:15
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra segir ekki hægt að tala um lítið svigrúm til launahækkana ef slíkt eigi ekki að gilda fyrir stjórnendur líka. Forystumenn í atvinnulífinu verði að sýna hófsemd í eigin launagreiðslum. Það er að sögn ráðherra mjög alvarlegt ef verðbólgan fer úr böndunum og Seðlabankinn á ærið verk fyrir höndum. Við ræðum við forsætisráðherra í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 25.8.2022 18:03
Reiknar með áherslu á Ævintýraborgirnar Ráðhús Reykjavíkur hefur frá því í morgun verið undirlagt foreldrum með börn á leikskólaaldri, sem mótmæla ástandi í leikskólamálum borgarinnar. Meirihlutinn mun kynna tillögur að bráðaaðgerðum að loknum borgarráðsfundi á eftir. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu býst við áherslu á Ævintýraborgirnar. 18.8.2022 11:58
Þakkar „kjánunum“ kærlega fyrir að þjappa hinsegin fólki saman Lögfræðingur segir að skemmdarverk sem unnin voru á listasýningu hinsegin daga geti hæglega flokkast sem hatursorðræða. Ítrekuð, sambærileg skemmdarverk á stuttum tíma séu gríðarlegt áhyggjuefni - en fara skuli varlega í að tala um bakslag í baráttunni. 17.8.2022 21:01
Hrifinn af tillögum Sjálfstæðismanna Oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík líst vel á bráðatillögur Sjálfstæðismanna í leikskólamálum. Ekkert sé því til dæmis til fyrirstöðu að koma á fót bakvarðarsveit til að tryggja mönnun leikskólanna. Meirihlutinn kynnir eigin tillögur á morgun - sem að sumu leyti muni svipa til tillagna Sjálfstæðismanna. 17.8.2022 11:34