Rýnt í fylgið á lokasprettinum og mögnuð heimsókn í íslenska gullnámu Samfylking og Viðreisn leiða áfram skoðanakannanir á fylgi flokkanna fyrir alþingiskosningarnar. Spennan magnast fyrir lokakannanirnar sem birtar verða á morgun. Við rýnum í stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og förum yfir möguleg þingsæti í beinni útsendingu. 28.11.2024 18:01
Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Forseti Alþýðusambands Íslands vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti frekari lækkun stýrivaxta. Alltof langt sé í næstu stýrivaxtaákvörðun í febrúar í ljósi nýjustu verðbólgumælinga. Raunvaxtastig á landinu sé nú í hæstu hæðum og ekki verði lengi við unað. 28.11.2024 11:32
Móðir grípur til örþrifaráða og bóndi hafnar erlendum fjárfestum Móðir sextán ára stúlku með einhverfu og fíknivanda fann sig knúna til að senda hana á meðferðarheimili í Suður Afríku því hún hafði ítrekað komið að lokuðum dyrum á Íslandi. Hún mat ástand dóttur sinnar sem svo að hún væri í bráðri hættu. Við ræðum við móðurina í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 27.11.2024 18:00
Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Kappleikarnir, öðruvísi og skemmtilegur kosningaþáttur, eru beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi í kvöld. Frambjóðendur tíu flokka mætast í myndveri og svara spurningum um þau mál sem helst brenna á ungu fólki. 26.11.2024 14:03
Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Samningaviðræður í kjaradeilu lækna og ríkisins eru á lokastigi og verið er að teikna upp kjarasamning, að sögn ríkissáttasemjara. Keppst er við að ná samningum áður en verkfall lækna hefst á miðnætti. Við förum yfir stöðuna í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18:30. 24.11.2024 18:14
„Þetta var mjög skrýtin stemning“ Fulltrúi Ungra umhverfissinna á COP29, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, segir samkomulag sem skrifað var undir í nótt ekki ganga nærri því nógu langt. Dramatík hafi einkennt undirskriftina, eins og ráðstefnuna sjálfa daginn á undan. 24.11.2024 13:39
Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Mjög hefur dregið úr virkni í miðgíg eldgossins í Sundhnúkum. Eldfjallafræðingur telur gosið eiga nokkra daga eftir en nú fari að slökkna á Sundhnúksgígaröðinni. Hraunkæling á svæðinu er í fullum gangi og gengur vel, að sögn hraunkælingarstjóra. Við förum yfir stöðuna í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12. 24.11.2024 11:56
Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Stór dagur er runninn upp í Karphúsinu. Vinnufundir í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga hófust í morgun og samninganefndir hafa svo verið boðaðar til eiginlegs samningafundar klukkan 12. Þá funda læknar og ríkið einnig í kapphlaupi við tímann. 24.11.2024 11:07
Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Vinna við að kæla hraunið við varnargarðinn kringum Svartsengi og Bláa lónið hefur gengið mjög vel. Kælingin hefur staðið yfir frá því í gærkvöldi og mun halda áfram á meðan verið er að hækka varnargarðinn. 24.11.2024 10:30
Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Hraun ógnar nú innviðum af ýmsu tagi í Svartsengi, þar sem unnið er hörðum höndum að því að hækka varnargarða og bjarga mikilvægum rafmagnsmöstrum. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir brýnt að Bláa lónið verði opnað um leið og það er öruggt. Hann óttast ekki að sláandi myndir frá síðustu dögum hafi fælingarmátt. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 23.11.2024 18:15