Alvarleg vanskil aukast og hryllingur í Úkraínu Merki eru um að vanskil heimila og fyrirtækja fari vaxandi. Alvarleg vanskil fyrirtækja hafa aukist á þessu ári samkvæmt gögnum frá innheimtufyrirtækinu Motus. Þróunin er möguleg vísbending um að víðtækari fjárhagsvandi sé framundan í efnahagslífinu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 8.7.2024 18:01
Óvissa og spenna í Frakklandi næstu daga Óvenjuleg staða, þrungin óvissu, er uppi í frönskum stjórnmálum eftir seinni umferð þingkosninga í gær, þar sem undið var ofan af stórsigri Þjóðfylkingarinnar frá því í fyrri umferð en enginn flokkur náði meirihluta. Íslendingur búsettur í París segir næstu daga verða spennandi. 8.7.2024 12:55
Akranesbær í sárum eftir gjaldþrot eins stærsta vinnustaðarins Stálsmiður hjá Skaganum 3X á Akranesi segir þrot fyrirtækisins hafa legið í loftinu en nú sé óljóst hvað taki við. Yfir hundrað manns urðu atvinnulausir á einu bretti í bænum í dag. Bæjarstjóri segir það mikið áfall að missa svo stóran vinnustað. Við förum upp á Skaga í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 4.7.2024 18:14
Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Búist er við stórsigri Verkamannaflokksins í þingkosningum í Bretlandi í dag en Íhaldsflokkurinn stendur ákaflega illa; ekki einu sinni forsætisráðherrann er öruggur um þingsæti. Formaður Samfylkingarinnar, sem er stödd úti í Bretlandi til að fylgjast með kosningum, segir greinilegt að Bretar vilji breytingar. 4.7.2024 13:17
Sjómenn „arfavitlausir“ og Lilja biður Stefán um frest Sjómenn sem nú eru sambandslausir út á miðum eftir að RÚV hætti útsendingum gegnum gervihnött um mánaðamótin eru arfavitlausir vegna málsins, að sögn formanns Sjómannasambandsins. Ekkert samráð hafi verið haft við sjómenn. Menningarmálaráðherra hefur óskað eftir því við útvarpsstjóra að útsendingum verði haldið áfram til áramóta. 3.7.2024 11:42
Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Kjörstöðum í Frakklandi hefur verið lokað og útgönguspár gefnar út strax í kjölfarið. Við förum yfir fyrstu tölur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og fáum Torfa Tulinius, prófessor og sérfræðing í málefnum Frakklands, til að greina stöðuna í myndveri í beinni útsendingu. 30.6.2024 18:01
„Fólk er einfaldlega hrætt“ Allt bendir til þess að þingkosningarnar sem nú eru hafnar í Frakklandi verði sögulegar, að sögn fyrrverandi þingmanns sem búsettur er í París. Hún kveðst aldrei hafa upplifað viðlíka spennu og ótta í frönsku samfélagi og nú, þar sem mikilla breytinga sé að vænta fari kosningarnar eins og kannanir bendi til. 30.6.2024 13:51
Hyggst ekki flýta bílabanni og efasemdir um nýtt eldgos Eldfjallafræðingur telur meiri líkur en minni á að ekki hefjist nýtt gos í Sundhnúksgígaröðinni á næstunni, þó að Veðurstofan mæli hraðara landris. Hægt hafi á flæði inn í dýpri kvikugeymsluna undir Svartsengi upp á síðkastið. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 29.6.2024 11:55
Birta viðkvæmar upplýsingar um lögreglumenn á netinu Dæmi eru um að persónuupplýsingar um lögreglumenn séu birtar á netinu í þeim tilgangi að hvetja til eignaspjalla, ögrunar eða ofbeldis. Embætti ríkislögreglustjóra merkir aukna neikvæða þróun í þessum efnum, sem grafi undan trausti milli lögreglu og borgara. Við ræðum við lögreglu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18:30. 28.6.2024 18:00
„Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Joe Biden Bandaríkjaforseti beið afhroð í forsetakappræðum hans og Donalds Trump í nótt, að mati stjórnmálaskýrenda. Þegar er farið að heyrast ákall um að Demókratar velji sér nýjan frambjóðanda, sem íslenskur sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum telur ekki útilokað. 28.6.2024 13:18