Fv. aðstoðarmaður Brexit-ráðherra: Brexit verður hörmung fyrir Bretland Ímynd Íhaldsflokksins á Bretlandi hefur beðið svo mikla hnekki vegna Brexit að hann mun aldrei vinna sigur í kosningum aftur. Þetta er mat fyrrverandi starfsmannastjóra Brexit-ráðherra ríkisstjórnarinnar sem telur útgönguna úr Evrópusambandinu verða „hörmung“ fyrir Bretland, 11.8.2017 10:33
Smástirni þýtur á milli jarðarinnar og tunglsins í október Þegar smástirnið 2012 TC4 þýtur fram hjá jörðinni á meira en 50.000 km/klst í október verður það langt inn fyrir braut tunglsins. Engin hætta er þó sögð á því að smástirnið rekist á jörðina. 11.8.2017 09:03
Lest straukst við bíl sem var ekið yfir teina Hurð skall nærri hælum þegar bíl með fjórum manneskjum um borð var ekið þvert yfir lestarteina í þann mund sem lest kom aðvífandi á miklum hraða. Lestin strauk afturenda bílsins og skemmdi en fólkið slapp ómeitt. 11.8.2017 08:31
Dularfullu hljóðvopni mögulega beitt gegn sendiráðsmönnum á Kúbu Fimm starfsmenn og makar starfsmanna bandaríska sendiráðsins í Havana á Kúbu hafa orðið fyrir heyrnartapi frá því seint á síðasta ári. Grunur leikur á að einhvers konar tæki með hættulegum hljóðbylgjum hafi verið beitt gegn þeim. Tveir kúbanskir erindrekar hafa verið reknir frá Bandaríkjunum vegna málsins. 10.8.2017 15:24
Helmingur repúblikana til í að fresta kosningum ákvæði Trump það Ný skoðanakönnun sýnir að meirihluti stuðningsmanna Repúblikanaflokksins myndi styðja að forsetakosningunum yrði frestað ef Donald Trump segði að það væri nauðsynlegt til að stöðva kosningasvindl. 10.8.2017 13:48
Konan sem barðist gegn Brexit fær hótanir um sýruárásir Ofsafullir stuðninigsmenn Brexit hafa hótað konu sem vann dómsmál sem þvingaði ríkisstjórnina til að leggja útgönguna fyrir þingið með sýruárásum. Hún óttast um öryggi sitt og útilokar ekki að flytja úr landi. 10.8.2017 11:50
Saka Norðmenn um að leika tveimur skjöldum í loftslagsbaráttunni Norðmenn hafa rekið metnaðarfulla loftslagsstefnu heima fyrir á sama tíma og þeir eru stærstu útflytjendur jarðefnaeldsneytis í Evrópu. Í nýrri skýrslu sem stór náttúruverndarsamtök standa á bak við er bent á það sem er kallað „hugarmisræmi“ Norðmanna hvað þetta varðar. 10.8.2017 11:16
Engar vísbendingar um svik í kosningunum í Kenía Yfirmaður kosningaeftirlitsnefndar ESB segir engin merki um að úrslitum forsetakosninganna í Kenía hafi verið hagrætt eins og frambjóðandi stjórnarandstöðunnar heldur fram. 10.8.2017 10:43
Framleiðandi Firefox-vafrans tekur á gervifréttum Mozilla, sem framleiðir Firefox-vefvafrann, leitar nú til annarra tæknifyrirtækja og hagsmunahópa til að rannsaka og reyna að finna lausnir á vandanum með gervifréttir sem gegnsýra netið. 10.8.2017 10:05
Norður-Kóreumenn tilbúnir í eldflaugaárás á Gvam von bráðar Her Norður-Kóreu er sagður leggja lokahönd á áætlun um að skjóta eldflaugum að Gvam. Ríkisfjölmiðlar einræðisríkisins segja Donald Trump Bandaríkjaforseta of „skyni skroppinn“ til að hægt sé að eiga viðræður við hann. 10.8.2017 08:33