Vinsæl heimildamynd gefur villandi mynd af hættu kjötneyslu Kvikmyndagerðarmaðurinn sem stendur að myndunum "What the Health“ og "Cowspiracy“ er sagður fara frjálslega með rannsóknir og gefur ranga mynd af því sem vísindin segja um skaðsemi kjötvara og losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði. 9.8.2017 15:45
Stjórnlagaþing Venesúela stofnar „sannleiksnefnd“ „Sannleiksnefnd“ undir forystu forseta nýs og umdeilds stjórnlagaþings Venesúela ætlar að rannsaka ofbeldisverk sem eru framin af pólitískum ástæðum eða óumburðarlyndi 9.8.2017 15:33
Húsleit gerð hjá fyrrverandi kosningastjóra Trump Útsendarar FBI lögðu hald á gögn í húsleit á heimili Pauls Manafort, fyrrverandi kosningastjóra Donalds Trump, 26. júlí. Húsleitin er sögð tengjast rannsókn á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum í fyrra. 9.8.2017 14:27
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna gerir lítið úr ógn af Norður-Kóreu Engin breyting hefur orðið á ástandi mála á Kóreuskaga þrátt fyrir orðaskak Donalds Trump og stjórnvalda í Norður-Kóreu. Trump hefur verið sakaður um að hóta kjarnorkustríði. 9.8.2017 14:03
Trump fær daglegar lofskýrslur um sjálfan sig Starfsmenn í Hvíta húsinu eru sagðir taka saman lofsamlega umfjöllun og valdsmannslegar myndir af Donald Trump sem þeir færa honum tvisvar á dag til að halda honum í góðu skapi. 9.8.2017 11:47
Stjórnarandstaðan í Kenía fullyrðir að brögð hafi verið í tafli Forsetaframbjóðandi kenísku stjórnarandstöðunnar fullyrðir að tölvuþrjótar hafi brotist inn í tölvukerfi kjörstjórnar og hagrætt úrslitum. Talning bendir til þess að sitjandi forseti landsins hafi unnið öruggan sigur. 9.8.2017 10:57
Konur tilnefndar sem varaforsetar Írans Forseti Írans bregst við gagnrýni á kynjahalla í ríkisstjórninni með því að tilnefna konur í embætti varaforseta. 9.8.2017 10:34
Mikil sóun í einnota kaffihylkjum Talið er að stærstur hluti einnota kaffihylkja eins og fer í Nespresso-vélar endi í ruslinu frekar en endurvinnslu. Sérfræðingur Umhverfisstofnunar segir mikla sóun felast í notkun kaffihylkja af þessu tagi og að Íslendingar hugsi ekki um auðlindir sem fóru í kaffi sem þeir hella niður í stríðum straumum. 9.8.2017 10:00
Fullyrða að losun gróðurhúsalofttegunda sé vantalin Úttekt breska ríkisútvarpsins BBC bendir til þess að sum ríki vanmeti losun ákveðinna gróðurhúsalofttegunda. Sérfræðingur sem það ræðir við telur það geta grafið undan Parísarsamkomulaginu. 9.8.2017 09:57
Trump „hæfileikaríkasti stjórnmálamaður okkar daga“ Einn aðalráðgjafa Donalds Trump Bandaríkjaforseta mætti í viðtal til Fox News í gær og sagði Trump hæfileikaríkasta stjórnmálamann samtímans og besta ræðumann sem hefur gegnt embætti forseta í margar kynslóðir. 9.8.2017 08:24