Sterk gróðurhúsalofttegund fylgifiskur aukinnar rafvæðingar Brennisteinshexaflúoríð er notað til að koma í veg fyrir rafmagnsslys. Það er tæplega 24.000 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. 13.9.2019 16:33
Þrír handteknir vegna brúarhrunsins í Genúa Ítölsk yfirvöld hafa fundið vísbendingar um að öryggisskýrslur vegna Morandi-brúarinnar hafi verið falsaðar eða upplýsingum haldið utan við þær. 13.9.2019 15:51
Assange verður áfram í fangelsi í Bretlandi Dómari taldi verulega hættu á að Assange hlypist aftur á brott eins og hann gerði fyrir sjö árum þegar hann leitaði hælis í sendiráði Ekvadors. 13.9.2019 13:37
Johnson varaður við að hunsa lög um útgönguna úr ESB Fráfarandi þingforseti segir að þingið ætti að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin brjóti lög, jafnvel þó að það þurfi að brjóta eigin reglur og þingsköp. 13.9.2019 11:39
Stjóri veðurstofnunar sem Sigmundur vitnaði í segir orð sín afbökuð Formaður Miðflokksins virðist hafa vitnað í umfjöllun erlendra miðla um viðtal við yfirmann Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Sá segir umfjöllunina valkvæða túlkun á því sem hann sagði og afstöðu hans. 12.9.2019 16:30
Fundu vatn á reikistjörnu á lífvænlegu svæði í fyrsta sinn Reikistjarnan er á svonefndu lífbelti móðurstjörnu sinnar. Þó að hún sé ekki talin lífvænleg sjálf vekur fundurinn vonir um að vatn finnist á vænlegri hnöttum í framtíðinni. 12.9.2019 13:01
Johnson neitar því að hafa logið að drottningunni Forsætisráðherra Bretlands segir að hæstiréttur Bretlands hafi lokaorðið um hvort ákvörðun hans um að fresta þingi hafi verið lögleg. 12.9.2019 12:38
Landtökubyggðir Ísraela stækkuðu eftir að Trump varð forseti Um 60% fleiri bygginarleyfi voru gefin út fyrir landtökumenn gyðinga í Austur-Jerúsalem fyrstu tvö ár forsetatíðar Trump en árin tvö á undan. 12.9.2019 12:14
Sigur Rós vísar til fordæmis Jóns Ásgeirs Verjandi Orra Páls Dýrasonar vísaði til fordæmis mála sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Bjarni Ármansson unnu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu þegar hann krafðist þess að máli gegn honum vegna skattalagabrota yrði vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 12.9.2019 10:04
Býður sig ekki fram til ritara Sjálfstæðisflokksins Oddviti sjálfstæðismanna í borginni gefur ekki kost á sér í kosningunni sem fer fram á flokksráðsfundi á laugardag. 11.9.2019 16:45