Leggja til 13% lækkun á þorskkvóta eftir ofmat á stofninum Hafrannsóknastofnun leggur til að sjávarútvegsráðherra lækki þorskkvóta um 13% á þessu fiskveiðiári. Vísar stofnunin til ofmats á stærð þorskstofnsins undanfarin ár og lítilla árganga. 15.6.2021 10:26
Handtekni blaðamaðurinn birtist opinberlega Hvítrússneski blaðamaðurinn Roman Prótasevits sem var handtekinn um borð í flugvél Ryanair kom fram á blaðamannafundi í fylgd með embættismönnum í dag. Þar neitaði Prótasevits að hafa verið beittur ofbeldi í haldi yfirvalda og lýsti iðrun vegna meintra glæpa sinna. Stjórnarandstaðan telur að hann hafi verið þvingaður til að koma fram opinberlega. 14.6.2021 16:21
Ákærður fyrir hryðjuverk vegna árásarinnar í Ontario Ríkissaksóknari Kanada hefur gefið út ákæru vegna hryðjuverka á hendur tvítugum karlmanni sem drap fernt þegar hann ók vísvitandi á fólkið í Ontario í síðustu viku. Lögregla telur að maðurinn hafi ráðist á fólkið sem tilheyrði allt sömu fjölskyldu vegna þess að það var múslimar. 14.6.2021 15:41
Segir Bandaríkin hafa „helga skyldu“ til að verja Evrópu Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti þátttöku Bandaríkjanna í sameiginlegum vörnum Evrópu, Kanada og Tyrklands sem „helgri skyldu“ þeirra við upphaf leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í morgun. Lagði hann áherslu á mikilvægi bandalagsins. 14.6.2021 13:40
G7-ríkin héldu að sér höndum um kolabruna Engin ákvörðun var tekin um hvenær bruna á kolum verður alfarið hætt á fundi sjö helstu iðnríkja heims sem lauk í gær. Ríkið sammæltust aðeins um að hætta fjármögnun nýrra kolaorkuvera sem búa ekki yfir tækni til að binda kolefni. 14.6.2021 12:57
Suu Kyi dregin fyrir dóm Réttarhöld yfir Aung San Suu Kyi, sem herinn í Búrma steypti af stóli í febrúar, hófust í dag. Mannréttindasamtök telja ákærurnar uppspuna og að herforingjastjórnin vilji ryðja henni úr vegi. 14.6.2021 11:58
Herferð Ortega gegn stjórnarandstöðunni heldur áfram Yfirvöld í Níkaragva handtóku fimm þekkta stjórnarandstæðinga á sunnudaginn í því sem gagnrýnendur Daniels Ortega forseta kalla herferð gegn andstæðingum hans. Fyrrverandi bandamenn Ortega eru á meðal þeirra handteknu. 14.6.2021 10:52
Vitorðsmenn í flótta Ghosn játa sig seka Tveir Bandaríkjamenn játuðu sig seka um að hafa hjálpað Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandans Nissan, að flýja Japan árið 2019. Mennirnir, sem eru feðgar, voru framseldir frá Bandaríkjunum í vor og gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. 14.6.2021 10:00
Svíar óttast að fjórða bylgjan kunni að vera í uppsiglingu Hópsýkingar svonefnda deltaafbrigðis kórónuveirunnar vekja nú áhyggjur sænskra heilbrigðisyfirvalda af því að fjórða bylgja faraldursins gæti verið í uppsiglingu þar. Hvetja þau landsmenn til að láta bólusetja sig sem fyrst. 11.6.2021 16:57
Vilja banna að börnum sé kennt um hinsegin fólk Stjórnarflokkur Ungverjalands hefur lagt fram frumvarp sem myndi leggja bann við að börn séu frædd um hinsegin og transfólk. Mannréttindasamtök fordæma frumvarpið og segja það í ætt við sambærileg lög sem voru samþykkt í Rússlandi fyrir nokkrum árum. 11.6.2021 16:21