Vilja endurskoða dóm hjúkrunarfræðings vegna barnadauða Lögmenn Lucy Letby, bresks hjúkrunarfræðings sem var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að drepa sjö ungbörn, kröfðust þess í dag að mál hennar yrði tekið upp aftur. Sérfræðingar hafa gagnrýnt túlkun á sönnunargögnum sem voru notuð til þess að sakfella hana. 4.2.2025 11:31
Tilraun með basa í Hvalfirði ekki sögð hættuleg lífríki Magn basa sem félagið Röst vill losa út í Hvalfjörð í sumar til þess að rannsaka kolefnisbindingu sjávar er ekki hættuleg lífríki og er minna en það sem iðn- og hafnarfyrirtæki mega losa út í sjó að staðaldri, að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Sérfræðingur Hafró segir erfitt að sjá að tilraunin valdi skaða á firðinum. 4.2.2025 09:49
Jarðefnaeldsneytisbílar um fimmtungur nýskráðra fólksbíla Rúmur fimmtungur nýskráðra fólksbíla í janúar var bensín- eða dísilknúinn. Tæplega sex hundruð bílar voru nýskráðir og fjölgaði þeim um hátt í þriðjung á milli ára. 3.2.2025 15:44
Skotmark sprengingar í Moskvu herforingi frá Austur-Úkraínu Rússnesk yfirvöld segja að skotmark banatilræðis í Moskvu í morgun hafi verið leiðtogi vopnaðrar sveitar sem er hliðholl Rússum í Austur-Úkraínu. Hann og lífvörður hans féllu þegar sprengja sprakk í anddyri lúxusblokkar. 3.2.2025 10:51
Brynjar Níelsson talinn hæfastur til að verða dómari Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara telur að Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sé hæfastur umsækjenda um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Jónas Þór Guðmundsson er talinn hæfastur sem dómari við Héraðsdóm Reykjaness. 3.2.2025 09:52
Einn látinn eftir sprengjutilræði í lúxusblokk í Moskvu Að minnsta kosti einn er látinn og fjórir eru alvarlega særðir eftir að sprengja sprakk í anddyri lúxusblokkar í Moskvu í morgun. Lögregla telur að um morð hafi verið að ræða en ekki liggur fyrir hver skotmarkið var. 3.2.2025 09:08
Nýr golfvöllur verði útivistarparadís fyrir Hafnfirðinga Formaður starfshóps sem Hafnarfjarðarbær hefur skipað til að finna staðsetningu fyrir nýjan golfvöll segist líta til þess að hann verði að almennu útivistarsvæði fyrir bæjarbúa. Báðir golfklúbbar bæjarins eru áhugasamir um að reka nýjan völl. 3.2.2025 07:00
Fyrsti fulltrúi Íslands á minningarathöfninni í Auschwitz Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var fyrsti fulltrúi íslenskra stjórnvalda til þess að sækja alþjóðlega athöfn til minningar um fórnarlömb helfararinnar í Auschwitz. Fyrrverandi utanríkisráðherra gagnrýndi forsætisráðherra harðlega fyrir að sækja ekki minningarathöfnina, einn norrænna leiðtoga. 31.1.2025 15:55
Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti viljayfirlýsingu við Carbfix um undirbúning kolefnisförgunarstöðvar í gær. Verkefnið er sagt geta skapað fjölbreytt atvinnutækifæri og skilað sveitarfélaginu auknar tekjur. Sérstaka áherslu á að leggja á samráð við samfélagið um verkefnið. 31.1.2025 14:05
Morð á kóranbrennumanni gæti tengst erlendu ríki Forsætisráðherra Svíþjóðar segir að mögulegt sé að erlent ríki hafi komið nálægt morði á írökskum flóttamanni sem vakti athygli fyrir að brenna trúarrit múslima á miðvikudag. Fimm menn eru í haldi lögreglu vegna morðsins. 31.1.2025 11:41
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent