Líkamshlutarnir af 24 ára gömlum karlmanni Tvennt hefur verið ákært eftir að lögregla á Grænlandi bar kennsl á líkamshluta sem fundust í sorpbrennslustöð í bænum Ilulissat fyrr í þessum mánuði. Líkamshlutarnir reyndust af 24 ára gömlum grænlenskum karlmanni. 13.10.2021 09:00
Opið þinghald í fimmta nauðgunarmáli „meðhöndlara“ Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að þinghald í máli Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar verði opið. Hann er ákærður fyrir nauðgun en hann var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni. 13.10.2021 08:35
Spænskir hægrimenn fýldir yfir gagnrýni á Kólumbus Kergja ríkir nú á meðal spænskra hægrimanna vegna gagnrýni á nýlendustefnu þeirra og Kristófer Kólumbus. Þeir eru einnig ósáttir við að Bandaríkjaforseti hafi viðurkennt voðaverk gegn frumbyggjum Ameríkanna. 12.10.2021 14:58
Sameinuðu þjóðirnar skila auðu um kvörtun Thunberg Nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins segist ekki geta tekið afstöðu til kvörtunar Gretu Thunberg og annarra ungra loftslagsaðgerðasinna sem halda því fram að aðgerðaleysi ríkja heims brjóti á réttindum þeirra. Ungmennin hefðu átt að snúa sér að dómstólum í hverju landi fyrir sig fyrst. 12.10.2021 14:04
Skörpustu myndirnar af stærstu smástirnum sólkerfisins Myndir sem stjörnufræðingar hafa náð af 42 stærstu fyrirbærunum í smástirnabeltinu í sólkerfinu okkar eru þær skörpustu til þessa. Þær varpa ljósi á fjölbreytta lögun og efnasamsetningu smástirnanna. 12.10.2021 12:00
Ræða við borgaryfirvöld um lélegt skyggni Festi hf. ætlar ekki að kæra ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um að synja fyrirtækinu um leyfi til að rífa skyggni við bensínstöð á Ægisíðu sem er orðið lélegt. Samráð á sér nú stað milli Festar og borgaryfirvalda um framtíð skyggnisins. 12.10.2021 11:06
Nýi Súpermann er tvíkynhneigður DC Comics myndasagnarisinn hefur tilkynnt að nýjasta útgáfan af persónu Súpermann verði tvíkynhneigð. Í næsta hefti myndasögunnar verður ofurhetjan ástsæla sýnd í ástarsambandi við karlmann. 12.10.2021 08:36
Erna fylgir Birgi ekki í Sjálfstæðisflokkinn Erna Bjarnadóttir ætlar ekki að fylgja Birgi Þórarinssyni og verða varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu. Birgir gaf í skyn yfirlýsingu um helgina að Erna ætlaði að fylgja honum úr Miðflokknum til Sjálfstæðisflokksins 12.10.2021 07:49
Stjórn AGS lýsti yfir stuðningi við Georgievu Kristalina Georgieva getur setið áfram sem framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir að stjórn hans lýsti yfir fullum stuðningi við hana að liknum fundi í gær. Taldi stjórnin ekki fullsannað að Georgieva hefði beitt sér á óeðlilegan hátt í þágu Kína þegar hún starfaði fyrir Alþjóðabankann. 12.10.2021 07:22
AGS útvatnaði varnaðarorð um áhættu vegna loftslagsbreytinga Stjórnendur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum lúffuðu fyrir fulltrúum Brasilíu og milduðu orðalag þar sem varað var við áhættu brasilísks efnahagslífs vegna loftslagsbreytinga í árlegri skýrslu. Framkvæmdastjóri sjóðsins á fyrir í vök að verjast vegna ásakana um að hún hafi gengið erinda Kínverja hjá Alþjóðabankanum. 11.10.2021 13:41