Varar Insigne við MLS: „Þetta er ekki alvöru fótbolti“ Ítalski fótboltamaðurinn Sebastian Giovinco hefur varað landa sinn, Lorenzo Insigne, við því að fara til Bandaríkjanna. Hann segir að ekki sé spilaður alvöru fótbolti í MLS-deildinni þar í landi. 30.12.2021 10:31
Tuchel segir heimskulegt að halda að Chelsea geti barist um titilinn Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, var í vondu skapi eftir jafnteflið við Brighton í gær og kvartaði yfir ástandinu á leikmannahópi Evrópumeistaranna og dómgæslunni í leiknum. 30.12.2021 09:31
Heimsmeistari og covid-efasemdamaður látinn eftir að hafa útskrifað sjálfan sig af spítala Belgíski sparkboxarinn Frédéric Sinistra er látinn, 41 árs að aldri. Hann lést af völdum hjartaáfalls vegna kórónuveirunnar. 30.12.2021 09:00
Segir að Ronaldo hafi slæm áhrif á samherjana og þeir séu hræddir við hann Cristiano Ronaldo hefur slæm áhrif á samherja sína hjá Manchester United og þrír leikmenn liðsins eru hræddir við hann. Þetta segir Gabriel Agbonlahor, fyrrverandi leikmaður Aston Villa. 30.12.2021 08:31
Morant og Memphis skelltu Lakers aftur niður á jörðina Eftir langþráðan sigur á Houston Rockets í gær var liði Los Angeles Lakers skellt aftur niður á jörðina þegar það sótti Memphis Grizzlies heim í NBA-deildinni í nótt. 30.12.2021 08:00
Heimsmeistarinn sagði að búið væri að gengisfella HM og lagði til að því yrði frestað Heimsmeistarinn Gerwyn Price lagði það til að HM í pílukasti yrði frestað vegna fjölda keppenda sem hafa þurft að draga sig úr keppni eftir að hafa greinst með kórónuveiruna. 30.12.2021 07:31
Arsenal líklegast til að krækja í Coutinho Philippe Coutinho gæti farið til Arsenal í næsta mánuði á láni frá Barcelona. 29.12.2021 17:31
Segir að Klopp hafi engar afsakanir Alan Shearer segir að Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, geti ekki afsakað tap liðsins fyrir Leicester City í gær með leikjaálaginu yfir hátíðirnar. 29.12.2021 16:00
Bróðir Maradona látinn Hugo Maradona, yngri bróðir Diegos Maradona, lést í gær á heimili sínu nálægt Napoli af völdum hjartaáfalls. Hann var 52 ára. 29.12.2021 13:31
Mætir aftur í Ally Pally eftir maraþonvaktir með slökkviliðinu um jólin Nokkrum klukkutímum eftir að hafa slegið Mensur Suljovic út á heimsmeistaramótinu í pílukasti var Alan Soutar mættur í hina vinnuna sína, hjá slökkviliðinu. 29.12.2021 11:30