Síldarvinnslan kaupir útgerðarfyrirtækið Vísi fyrir meira en 30 milljarða Síldarvinnslan í Neskaupstað, eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins, hefur náð samkomulagi um að kaupa allt hlutafé sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis í Grindavík. Kaupverð hlutafjár er 20 milljarðar króna en að teknu tilliti til vaxtaberandi skulda Vísis, sem nema um 11 milljörðum, er heildarkaupverðið um 31 milljarður króna. 10.7.2022 20:27
Bætt við sig í Íslandsbanka fyrir um 17 milljarða á þremur mánuðum Átta af helstu lífeyrissjóðum landsins, sem eiga það allir sammerkt að fara í dag með meira en eins prósenta hlut í Íslandsbanka, hafa stækkað eignarhlut sinn í bankanum um samanlagt liðlega þriðjung frá því að útboði ríkissjóðs lauk í mars á þessu ári. Sömu lífeyrissjóðir eiga nú samtals tæplega 28 prósenta hlut í Íslandsbanka en fyrir rétt rúmlega þremur mánuðum nam eignarhluturinn um 21 prósenti. 10.7.2022 13:17
DNB mælir með kaupum í Alvotech og verðmetur félagið á 700 milljarða Hlutafé íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem var skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi í liðnum mánuði, er metið á rúmlega 5,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 700 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi, samkvæmt nýju verðmati. 7.7.2022 16:01
Hætta á launaskriði hefur aukist, segir peningastefnunefnd Seðlabankans Einn nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, Gylfi Zoega hagfræðiprófessor, vildi hækka meginvexti bankans um 1,25 prósentur – úr 3,75 prósentum í 5 prósent – á vaxtaákvörðunarfundi nefndarinnar í síðasta mánuði. Niðurstaðan var hins vegar sú, sem allir nefndarmenn studdu, að vextir voru hækkaðir um 1 prósentu að tillögu Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. 6.7.2022 16:36
Sigurður seldi í Bláa lóninu með um þriggja milljarða hagnaði Sigurður Arngrímsson, fjárfestir og einn af stærri hluthöfum Bláa lónsins um árabil í gegnum eignarhaldsfélagið Saffron Holding, hagnaðist um 2,93 milljarða króna þegar hann losaði um allan eignarhlut sinn í ferðaþjónustufyrirtækinu í september í fyrra. 6.7.2022 07:01
Félag Reynis kaupir í Icelandair fyrir meira en hálfan milljarð Fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar, stofnanda Creditinfo, hefur eignast meira en eins prósenta hlut í Icelandair Group og er núna komið í hóp tuttugu stærstu hluthafa flugfélagsins. 5.7.2022 15:04
Ráðandi eigandi Íslenskra verðbréfa stækkar við hlut sinn Eignarhaldsfélagið Björg Capital, sem hefur verið langsamlega stærsti hluthafi Íslenskra verðbréfa (ÍV) með helmingshlut allt frá sameiningu ÍV og Viðskiptahússins um mitt árið 2019, hefur að undanförnu keypt út suma af minni hluthöfum verðbréfafyrirtækisins og fer núna með um 63,5 prósenta eignarhlut. 5.7.2022 14:18
Mestu gjaldeyriskaup lífeyrissjóða í einum mánuði frá upphafi mælinga Íslensku lífeyrissjóðirnir keyptu erlendan gjaldeyri fyrir um 17 milljarða króna í maí á þessu ári en það eru stórtækustu gjaldeyriskaup þeirra í einum mánuði frá því að Seðlabankinn hóf að safna gögnum um gjaldeyrisviðskipti sjóðanna árið 2017. 5.7.2022 08:59
Ísland fært upp í flokk nýmarkaða hjá FTSE í þremur áföngum Íslenski hlutabréfamarkaðurinn mun færast að fullu upp í flokk nýmarkaðsríkja (e. Secondary Emerging Markets) hjá alþjóðlega vísitölufyrirtækinu FTSE Russell í þremur jafn stórum skrefum á tímabilinu frá september næstkomandi og til marsmánaðar á næsta ári. 4.7.2022 09:39
Flosi hættir hjá Starfsgreinasambandinu Flosi Eiríksson, sem hefur verið framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands (SGS) frá árinu 2018, lætur af störfum hjá samtökunum skömmu áður en formlegar viðræður við Samtök atvinnulífsins um nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði hefjast en þeir verða lausir 1. nóvember næstkomandi. 3.7.2022 12:27