Innflæði í hlutabréfasjóði í fyrsta sinn í fimm mánuði Þrátt fyrir að hlutabréfaverð hafi tekið mikla dýfu í liðnum mánuði þá reyndist vera hreint innflæði í innlenda hlutabréfasjóði upp á tæplega hálfan milljarð króna í september. Er þetta í fyrsta sinn frá því í apríl á þessu ári þar sem sala á nýjum hlutdeildarskírteinum í slíka sjóði er meiri en sem innlausnum fjárfesta. 28.10.2022 13:01
Áform ráðherra gætu haft „jákvæð áhrif á vaxtaumhverfið,“ segir bankastjóri Arion Bankastjóri Arion banka telur að áform fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulag við kröfuhafa, eigi ekki að valda þrýstingi á fjármálamarkaði heldur geti þau haft „jákvæð áhrif“ á vaxtaumhverfið. Arion hefur fært niður virði íbúðabréfa útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum í bókum sínum fyrir um 250 milljónir króna. 27.10.2022 12:07
Afkoma Arion undir væntingum vegna samdráttar í fjármunatekjum Arion banki hagnaðist um rúmlega 4.860 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi og dróst hann saman um liðlega 41 prósent á milli ára. Á meðan afkoman af kjarnarekstri bankans, meðal annars mikil aukning í vaxtatekjum, var í samræmi við væntingar þá var samdrátturinn í fjármunatekjum talsvert umfram spár greinenda samhliða erfiðum markaðsaðstæðum. 26.10.2022 17:32
Voru „ekki augljós tækifæri“ að nýta söluhagnað Mílu í fjárfestingar erlendis Forstjóri Símans segir að það hafi verið kannað gaumgæfilega hvort það væru fyrir hendi ákjósanlegir fjárfestingarkostir erlendis til að nýta að hluta þá miklu fjármuni sem félagið fékk við söluna á Mílu. Svo hafi ekki verið og því ákveðið að greiða þá alla út til hluthafa en félagið hafi ekki viljað vera „yfirfjármagnað“ nema að fyrir lægju skýr markmið um hvað ætti að gera við þá fjármuni. 26.10.2022 16:40
Skuldabréfasjóðir færa niður eignir um milljarða vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Stærstu skuldabréfasjóðir landsins, sem eru opnir öllum fjárfestum og margir hverjir með stórt hlutfall eignasafnsins bundið í íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, hafa nú þegar fært niður virði eigna sinna um marga milljarða króna eftir að fjármálaráðherra boðaði aðgerðir til að slíta ÍL-sjóði, samkvæmt greiningu Innherja. Mestu munar um tæplega fimm prósenta gengislækkun 20 milljarða ríkisskuldabréfasjóðs í stýringu Íslandssjóða í einu vetfangi sem þýddi niðurfærslu á virði eigna hans um meira en 900 milljónir. 26.10.2022 08:15
Selur hlut sinn í Orkufélaginu fyrir tæplega þrjá milljarða SKEL hefur samþykkt kauptilboð frá færeysku félagi í allan 48,3 prósenta hlut íslenska fjárfestingafélagsins í S/P Orkufélaginu fyrir jafnvirði um 2,8 milljarða króna. Orkufélagið er eignarhaldsfélag utan um P/F Magn sem starfar í Færeyjum. 25.10.2022 16:52
Innlán fyrirtækja tóku yfir 40 milljarða króna stökk í einum mánuði Umfang innlána atvinnufyrirtækja í viðskiptabönkunum jókst um rúmlega 40 milljarða króna í september, eða um heil sex prósent á milli mánaða. Líklegt má telja að þar muni mikið um stóra greiðslu til Símans vegna sölunnar á Mílu á síðasta degi septembermánaðar en verulegur vöxtur hefur verið í innlánum fyrirtækja allt frá vormánuðum síðasta árs. 25.10.2022 13:18
Ráðherra „mótmælir harðlega“ að slit á ÍL-sjóði líkist greiðslufalli ríkissjóðs Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist „mótmæla harðlega“ þeirri skoðun sem stjórnarmaður í lífeyrissjóði hefur sett fram að ef ÍL-sjóður, áður gamli Íbúðalánasjóðurinn, verði settur í slitameðferð jafngildi það greiðslufalli ríkissjóðs sem er í ríkisábyrgð fyrir skuldbindingum sjóðsins. 25.10.2022 08:36
Áforma að bjóða fjárfestum að kaupa allt að 40 prósenta hlut í Ljósleiðaranum Stjórn Ljósleiðarans, sem er alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur (OR), hefur samþykkt að auka hlutafé félagsins þar sem stefnt er að því að selja hina nýju hluti til utanaðkomandi fjárfesta. Gert er ráð fyrir að eignarhlutur Orkuveitunnar verði ekki minni en 60 prósent að loknu hlutafjárútboðinu. 24.10.2022 18:15
Bankarnir hafa fimmfaldað útlán sín til fyrirtækja milli ára Eftir vísbendingar um að það væri farið að hægja á miklum útlánavexti viðskiptabankanna til atvinnufyrirtækja í ágúst þá sýna nýjar tölur Seðlabankans að hann tók við sér kröftuglega á ný í liðnum mánuði. Á fyrstu þremur fjórðungum þessa árs þá nema ný útlán bankanna til fyrirtækja samtals um 213 milljörðum króna borið saman við aðeins 44 milljarða á sama tímabili fyrir ári. 24.10.2022 16:01