Frakkar gera ráð fyrir allt að 100 þúsund greiningum á dag Olivier Veran, heilbrigðisráðherra Frakklands, segir mögulegt að brátt muni 100 þúsund einstaklingar greinast daglega með Covid-19 í landinu en fjöldinn er nú í kringum 70 þúsund. 22.12.2021 09:57
Snarpir skjálftar við Fagradalsfjall og sá stærsti 4,9 stig Þrír snarpir jarðskjálftar fundust vel á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan 9 í morgun. Sá stærsti varð klukkan 9.23 og mældist 4,9 að stærð. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna skjálftanna. 22.12.2021 09:16
Skattlaust ár fyrir heilbrigðisstarfsfólk í bráðaþjónustu? „Hvernig væri að veita heilbrigðisstarfsfólki í bráðaþjónustu skattlaust ár?“ spyr Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og fyrrverandi yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítalans, í Facebook-færslu. 22.12.2021 08:12
Takmarka skammtastærðina til að bregðast við kartöfluskorti Neytendur í Japan munu aðeins geta keypt lítinn skammt af frönskum kartöflum á McDonald's í næstu viku vegna kartöfluskorts. Skortinn má meðal annars rekja til flóða í Kanada og áhrifa kórónuveirufaraldursins á aðfangakeðju heimsins. 22.12.2021 07:29
Yfirvöld í Ísrael leggja drög að bólusetningu með fjórða skammtinum Heilbrigðisyfirvöld í Ísrael leggja nú drög að bólusetningarátaki sem mun miða að því að gefa landsmönnum fjórða skammtinn af bóluefnum gegn Covid-19 til að bregðast við mögulegri bylgju sýkinga af völdum ómíkron-afbrigðisins. 22.12.2021 06:44
Tíu skjálftar yfir 3 að stærð og flugkóða breytt í appelsínugulan Veðurstofa hefur breytt fluglitakóða í appelsínugulan sökum skjálftavirkni um tveimur til fjórum kílómetrum norðaustur af Geldingadölum sem jókst til muna um klukkan 18 í gærkvöldi. 22.12.2021 06:15
WHO hvetur fólk um allan heim til að aflýsa eða fresta jólaboðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur fólk um allan heim til að aflýsa eða fresta jólaboðum og öðrum mannfögnuðum til að stemma stigu við útbreiðslu ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. 21.12.2021 07:56
Aðalleikonurnar úr Sex and the City lýsa yfir stuðningi við meinta þolendur Noth Aðalleikonurnar í Sex and the City og framhaldsþáttunum And Just Like That hafa birt yfirlýsingu á Twitter þar sem þær segjast afar daprar vegna ásakana á hendur meðleikara þeirra, Chris Noth, um meint kynferðisbrot. 21.12.2021 07:46
Ríkisstjórnin fundar klukkan 9.30 og ræðir tillögur Þórólfs Ríkisstjórnin hittist á fundi um klukkan 9.30 í dag. Þar verða tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar ræddar. 21.12.2021 06:55
Gunnar Smári sakar Willum um leka til að gera Þórólf að „vonda kallinum“ Gunnar Smári Egilsson sakar heilbrigðisráðuneytið um að hafa lekið nýjasta minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis í þeim tilgangi að láta ráðherra líta vel út þegar framhald sóttvarnaaðgerða verður tilkynnt í dag. 21.12.2021 06:48