Dagur í sóttkví og hyggst tilkynna um framtíð sína í pólítík þegar hann losnar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er kominn í sóttkví eftir að eitt barna hans greindist með Covid-19. Hann segir öllum í fjölskyldunni líða vel en hann muni greina frá því hvort hann hyggst sækjast eftir endurkjöri þegar hann losnar úr sóttkví. 5.1.2022 12:21
Húðflúrlistamenn uggandi vegna banns gegn algengum efnum í húðflúrbleki Evrópskir húðflúrlistamenn eru uggandi vegna nýs banns Evrópusambandsins við þúsundum efna sem finna má í lituðu bleki sem notað er við húðflúrun. 5.1.2022 08:10
Lögreglu bárust 158 beiðnir um leit að börnum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust í fyrra 158 leitarbeiðnir vegna týndra ungmenna en Guðmundur Fylkisson, sem sinnir verkefninu hjá lögreglunni, segir um að ræða minnsta fjöldann frá 2015. 5.1.2022 06:55
Smit greindist hjá áhöfn Icelandair eftir flug frá Washington D.C. milli jóla og nýárs Smit kom upp hjá áhöfn Icelandair sem flaug hingað til lands frá Washington D.C. 27. desember síðastliðinn. Heimildir Vísis herma að öll áhöfnin hafi reynst smituð af Covid-19 utan flugstjórans en þetta hefur ekki fengist staðfest hjá Icelandair. 5.1.2022 06:28
Megna fíkniefnalykt lagði úr stöðvaðri bifreið Helstu verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt snéru að umferðareftirliti en í einu tilvikinu hugðist lögregla stöðva bifreið þar sem ökuljós hennar voru ekki tendruð. 5.1.2022 06:13
Halda nöfnum gesta leyndum til að koma í veg fyrir mismunun Forsvarsmenn Airbnb hafa ákveðið að halda nöfnum gesta í Oregon í Bandaríkjunum leyndum þar til bókun þeirra hefur verið staðfest af gestgjafa. Þetta er gert til að tryggja að gestgjafar mismuni ekki gestum á grundvelli kynþáttar. 4.1.2022 08:46
Björn Ingi segir óbólusetta útlendinga „bleika fílinn í stofunni“ „Bleiki fíllinn í stofunni“, sem ekki má tala um, er að flestir þeir sem nú veikjast alvarlega af kórónuveirunni hér á landi „eru útlendingar sem vinna hér og hafa íslenska kennitölu en gera annars lítt eða ekkert með sóttvarnaráðstafanir okkar samfélags“. 4.1.2022 08:05
Bandaríkjamenn setja heimsmet í greindum á sólarhring Yfir milljón manns greindust með Covid-19 í Bandaríkjunum í gær en um er að ræða nýtt heimsmet í fjölda greininga sjúkdómsins á einum degi. Þá er þetta næstum tvöföldun á fyrra meti, sem féll í Bandaríkjunum fyrir fjórum dögum, þegar 590 þúsund manns greindust með kórónuveiruna. 4.1.2022 07:13
Ákveðið að láta bústað við Elliðavatn brenna til grunna Tekin var sú ákvörðun að láta sumarhús við Elliðavatn brenna til grunna þegar eldur kom upp í því síðla nætur en freista þess að vernda gróður, þar sem bústaðurinn stendur á vatnsverndarsvæði. 4.1.2022 06:58
Lögregla segir borgina láta mann sofa úti í sjö stiga frosti Maður sem venjulega gistir í aðstöðu á vegum Reykjavíkurborgar er nú í straffi og gistir á götunni í sjö gráðu frosti. Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni, þar sem segir að hún hafi verið kölluð til að hóteli í miðborginni þar sem starfsmenn voru í vandræðum með manninn, sem var ölvaður. 4.1.2022 06:37