Stjórnendur Karolinska heimila Birni að ráðleggja Willum Björn Zoëga hefur fengið heimild hjá yfirstjórnendum Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð til að sinna ráðgjafastörfum fyrir heilbrigðisráðherra Íslands í hjáverkum. 3.1.2022 13:27
Úkraínskur ráðherra kvartar til Netflix vegna persónu í Emily in Paris Menningarmálaráðherra Úkraínu hefur sent formlegt erindi til Netflix og kvartað undan persónu í þáttunum Emily in Paris. Þeir segja hana „óásættanlega skrípamynd“ af úkraínskri konu. 3.1.2022 08:41
Íhugar að skikka borgarstarfsmenn til að þiggja örvunarskammt Eric Adams, borgarstjóri New York, sagðist í gær vera að íhuga að skylda starfsmenn borgarinnar til að þiggja örvunarskammt af bóluefnunum gegn Covid-19. Opinberir starfsmenn í New York hafa þegar verið skikkaðir til að þiggja bólusetningu. 3.1.2022 07:45
Umfangsmiklar refsiaðgerðir það eina sem geti komið í veg fyrir innrás Það verður að teljast afar líklegt að Rússland ráðist inn í Úkraínu og það eina sem gæti mögulega komið í veg fyrir það eru gríðarlega umfangsmiklar refsiaðgerðir. Þetta segir Adam Schiff, formaður leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar bandaríska þingsins. 3.1.2022 06:48
Eftirlýstur handtekinn í verslunarmiðstöð og ungar konur vegna slagsmála Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í gær kölluð til vegna manns í verslunarmiðstöð sem grunaður var um þjófnað. Í ljós kom að maðurinn var eftirlýstur af lögreglu. Var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu. 3.1.2022 06:13
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins biðlar til fólks um að hætta að skjóta upp flugeldum „Þetta er bara skelfilegt,“ sagði vaktmaður hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu þegar fréttastofa náði tali af honum rétt í þessu. Vísi hefur borist fjöldi ábendinga um gróðurelda sem hafa kviknað útfrá brennum eða flugeldum og samkvæmt upplýsingum frá vakt slökkviliðsins hefur mannskapurinn farið í 50 útköll það sem af er kvöldi. 1.1.2022 00:28
Bjartsýnn en segir ójafna dreifingu bóluefna helstu ógnina Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, segist bjartsýnn á að ríkjum heims takist að ná tökum á kórónuveirufaraldrinum árið 2022. Það muni þó krefjast þess að menn taki höndum saman. 31.12.2021 23:34
Betty White er látin „Jafnvel þótt Betty væri að verða 100 ára hélt ég að hún myndi lifa að eilífu,“ segir Jeff Witjas, umboðsmaður og náin vinur leikkonunnar Betty White, sem lést fyrr í dag. 31.12.2021 20:48
Tígur í bráðri útrýmingarhættu skotinn í dýragarði í Flórída Átta ára malasískur tígur var skotinn í Naples dýragarðinum í Flórída í gær eftir að hafa bitið í handlegg eins starfsmanna garðsins. Lögregla reyndi að fá tígurinn til að sleppa manninum en neyddist til að skjóta hann þegar það gekk ekki. 30.12.2021 08:39
Að vera eða ekki vera... fullbólusettur Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum velta því nú fyrir sér að breyta skilgreiningunni á „fullbólusettur“ en það þykir hafa bæði kosti og galla. Eins og stendur er talað um að menn séu fullbólusettir eftir tvo skammta en spurningin er hvort menn þurfa ekki að hafa fengið þrjá skammta til að geta raunverulega talist bólusettir að fullu. 30.12.2021 07:37