Matvælastofnun rannsakar dularfullan hósta meðal hunda á höfuðborgarsvæðinu Matvælastofnun hefur sett af stað rannsókn í samvinnu við Tilraunastöð Háskólans á Keldum til að reyna að komast til botns í því hvað veldur hósta hjá hundum sem hefur gert vart við sig á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. 11.1.2022 09:50
Bandarískur fræðimaður lýsir upplifun sinni af blóðmerahaldi á Íslandi „Sumar merarnar voru alræmdar fyrir mótstöðu sína og brutu stundum básana við að reyna að kasta sér yfir hliðið. Harpa, grá meri sem kom oft út ötuð í blóðslettum, var fræg fyrir þann hæfileika sinn að geta kastað sér niður á hliðina í litlum básnum.“ 11.1.2022 08:47
Svínshjarta grætt í mann í fyrsta sinn Læknar í Bandaríkjunum hafa grætt svínshjarta í mann, í aðgerð sem talin er marka tímamót í læknavísindunum. Hin átta tíma langa aðgerð var framkvæmd á föstudag og þegar greint var frá fréttunum í gær var líðan sjúklingins með ágætum. 11.1.2022 07:14
Fjórða andlátið á árinu af völdum Covid-19 Einstaklingur lést af völdum Covid-19 í gær. Frá þessu greindi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við Björn Inga Hrafnsson sem sýnt var frá á Facebook-síðu Viljans. 11.1.2022 06:18
Sóttvarnareglubrjótar og heimilisátök á Suðurlandi Tvö mál komu upp í vikunni í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi þar sem aðilar sem áttu að vera í einangrun vegna Covid-19 eru grunaðir um að hafa virt þá skyldu að vettugi. Málin eru bæði komin á borð ákærusviðs. 10.1.2022 12:38
Langflestar þungaðar konur sem leggjast inn vegna Covid eru óbólusettar Stjórnvöld á Bretlandseyjum segja nær allar þungaðar konur sem lagðar hafa verið inn með Covid-19 hafi verið óbólusettar. Yfirvöld hafa ráðist í herferð til að fá óléttar konur til að þiggja bólusetningu. 10.1.2022 11:32
„Eilífðarfanginn“ Zubaydah fær milljónir frá Litháen vegna pyntinga Stjórnvöld í Litháen hafa greitt Abu Zubaydah, „eilífðarfanganum“, meira en 110 þúsund dollara í bætur fyrir að hafa heimilað bandarísku leyniþjónustunni að hafa haldið honum og pyntað á „svörtum stað“ skammt frá borginni Vilníus. 10.1.2022 10:43
Dagur áfram í pólitíkinni Dagur B. Eggertsson hyggst halda áfram í pólitík og gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hann greindi frá þessu í samtali við Morgunútvarp Rásar 2 rétt í þessu. 10.1.2022 08:18
The Power of the Dog og Succession sigursæl á Golden Globe Kvikmyndin The Power of the Dog og sjónvarpsþáttaröðin Succession stóðu uppi sem sigurvegarar kvöldsins þegar Golden Globe-verðlaunahátíðin fór fram í gærkvöldi. Um var að ræða eina lágstemmdustu hátíð Hollywood í manna minnum en engar stjörnur voru viðstaddar. 10.1.2022 07:02
Bólusetningar barna 5 til 11 ára hefjast í Laugardalshöll Bólusetningar barna á aldrinum 5 til 11 ára hefjast í dag. Á höfuðborgarsvæðinu fara þær fram í Laugardalshöll, á milli klukkan 12 og 18. Börn mæta með fylgdarmanni, sem er með barninu allan tímann og bíður með því eftir bólusetningu. 10.1.2022 06:29