Hádegisfréttir Bylgjunnar Átök á vinnumarkaði, eldgos í Meradölum og leikskólamál í Reykjavík verða efst á baugi í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 10.8.2022 11:22
Kínverjar hættir í bili en áskilja sér rétt til hernaðaraðgerða Stjórnvöld í Kína segja heræfingum við Taívan lokið í bili en herafli landsins sé enn að æfingum og í viðbragðsstöðu. Í yfirlýsingu stjórnvalda segir að eftirlit verði áfram haft með sundinu sem skilur Taívan frá meginlandinu og að herinn sé reiðubúinn til að grípa til aðgerða ef þurfa þykir. 10.8.2022 11:13
Frelsun Krímskaga forsenda stríðsloka, segir Selenskí Stríðið í Úkraínu hófst með innlimun Krímskaga og mun aðeins enda með frelsun hans, segir Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti. Selenskí segir Krímskaga tilheyra Úkraínu og að Úkraínumenn muni aldrei gefa hann eftir. 10.8.2022 07:50
HBO Max ekki væntanleg til Íslands fyrr en 2024 Streymisveitan HBO Max, sem hafði boðað komu sína hingað til lands á seinnihluta þessa árs, verður ekki á boðstólum íslenskra sjónvarpsunnenda fyrr en seint á árinu 2024. 10.8.2022 07:34
Konan sem ásakaði Emmett Till um áreitni mun ekki sæta ákæru Ákærukviðdómur í Mississippi í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að það liggi ekki næg sönnunargögn fyrir til að gefa út ákæru á hendur Carolyn Bryant Donham, hvers ásakanir urðu til þess að táningnum Emmett Till var rænt og hann skotinn í höfuðið árið 1955. 10.8.2022 07:25
„Þurfum að undirgangast viðurkennd lögmál hagfræðinnar,“ segir Bjarni Það er ekki hægt að flýja verðbólguna og Seðlabankinn mun ekki lækka vexti bara af því að gerð eru hróp að honum, segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. 10.8.2022 07:10
Hádegisfréttir Bylgjunnar Eldgos, leikskólapláss í Reykjavík og spennan í samskiptum Kína og Taívan eru á meðal þess sem fjallað verður um í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 9.8.2022 11:30
Átta látnir í flóðum á höfuðborgarsvæðinu í Suður-Kóreu Að minnsta kosti átta eru látnir og fjórtán slasaðir í gríðarlegum flóðum í kjölfar úrhellisrigninga í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, í gær. 9.8.2022 07:51
Tíu prósent heimila safni skuldum eða gangi á sparifé Um tíu prósent landsmanna safna skuldum eða þurfa að ganga á sparifé til að ná endum saman, ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar Prósents sem greint er frá í Fréttablaðinu í dag. 9.8.2022 07:47
Munu ekki geta staðið við fyrirheit um pláss fyrir öll 12 mánaða börn Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar, segir nokkur pláss laus eins og er en ekki endilega í þeim hverfum þar sem eftirspurnin er mest. 9.8.2022 07:16