Vísar gagnrýni á bug Fjármálaráðherra vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar um hans ábyrgð á verðbólgunni á bug og segir tölur í ríkisfjármálum tala sínu máli. Ríkisstjórnin hafi staðið sig vel í að torvelda ekki bankanum að ná verðbólgumarkmiðum. 26.8.2023 21:13
Kubbaði Eiffelturn úr tíu þúsund og einum kubbi Gestum og gangandi gafst tækifæri á að skoða einstakt Legosafn í bílskúr á Seltjarnarnesi í tilefni af Bæjarhátíð. Eigandi safnsins segir fullorðna fólkið oft mun áhugasamara um safnið en þau sem yngri eru. Safnið telur yfir 500 Legosett, það elsta frá um 1940 og þau nýjustu glæný. 26.8.2023 20:20
„Að fá lyfið á svörtum markaði er ekkert auðveldara en að fá það í apóteki“ Formaður ADHD samtakanna segir lyfjaskort setja allt úr skorðum hjá þeim einstaklingum sem eru með ADHD og fá ekki lyfin sín. Lyfið sé jafn ófáanlegt á svörtum markaði og í apótekum. 26.8.2023 12:19
„Okkur finnst að tíundi bekkur ætti að mega hafa síma“ Sumarfríi grunnskólabarna lauk víðast hvar í dag þegar skólar voru settir í blíðskaparveðri. Um fjögur þúsund börn hefja skólagöngu sína í fyrsta bekk um land allt í ár. Krakkarnir í Laugalækjaskóla eru mishrifnir af nýrri reglu um svokallað símafrí. Skólastjóri segir tíma nemenda betur varið með skólafélögum og telur öryggi þeirra aukast án símans. 22.8.2023 19:28
Heitavatnslaust í Hafnarfirði og hluta Garðabæjar í einn og hálfan sólarhring Heitavatnslaust verður í öllum Hafnarfirði og hluta Garðabæjar í einn og hálfan sólarhring frá og með klukkan tíu í kvöld vegna framkvæmda. 21.8.2023 21:48
Bjóða starfsfólki að læra íslensku með gervigreind Íslenskt stórfyrirtæki, þar sem erlent starfsfólk er í miklum meirihluta, býður því upp á íslenskukennslu með gervigreind. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að efla sjálfstraust og gleði starfsmanna ásamt því að veita betri þjónustu. 21.8.2023 20:41
Ekki rétt að tala um plataðgerðir Hjúkrunarfræðingur á Klíníkinni segir ekki rétt að tala um plataðgerðir í þeim tilfellum sem Íslendingar hafa farið erlendis í efnaskiptaaðgerð og hún hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Vissulega hafi aðgerðir verið framkvæmdar en ekki nægilega góðar. 21.8.2023 12:58
Skiptar skoðanir í garð ferðamanna: „Þetta er orðið eins og skrímsli sums staðar“ Íslendingar hafa aldrei verið neikvæðari í garð erlendra ferðamanna en nú, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að þessu beri að taka alvarlega en að niðurstöðurnar komi ekki á óvart í ljósi mikillar fjölgunar ferðamanna. 17.8.2023 23:01
Bæjarstjóri og ráðherra deila um ábyrgð á flóttafólki Félagsmálaráðherra segir það undir sveitarfélögunum komið hvort þau veiti þjónustusviptum hælisleitendum þjónustu eða ekki. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar vísar ábyrgðinni til ráðherrans. Bærinn muni ekki grípa hópinn. 13.8.2023 21:56
„Ég á meiri samleið með starfsfólkinu en íbúunum“ Ung kona með hreyfihömlun sem hefur beðið í næstum fimm ár eftir notendastýrðri persónulegri aðstoð hjá Reykjavíkurborg segir biðina óbærilega. Hún hefur höfðað mál gegn borginni og íslenska ríkinu. 13.8.2023 19:24