Vinnur að því að taka barnaverndarmál fastari tökum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur að því að taka barnaverndarmál fastari tökum og grípa fyrr inn í málin. Um er að ræða tilraunaverkefni sem unnið er í samstarfi barnaverndar og lögreglu. 27.11.2019 20:30
Meintum kynferðisbrotamanni ekki vísað úr dómssal við skýrslugjöf brotaþola Landsréttur felldi í gær úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður, sem kærður er fyrir kynferðisbrot gegn stúlku sem þá var sextán ára gömul, skyldi víkja úr dómssal á meðan hún gæfi skýrslu fyrir dómi. 27.11.2019 20:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarþingmönnum fækkaði um einn í dag þegar Andrés Ingi Jónsson sagði sig úr Vinstri hreyfingunni grænu framboði. Hann segir æ meira hafa skilið á milli hans og annarra þingmanna flokksins að undanförnu og ætlar að starfa utan flokka. 27.11.2019 18:00
Ungverjar draga sig úr Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva Ungverjaland mun ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári en engin ástæða var gefin fyrir þeirri ákvörðun. Margir telja þó að ríkisstjórn landsins, sem er langt á hægri skalanum, finnist keppnin "of hýr.“ 27.11.2019 17:57
Landsmenn geta ekki leyst út lyfin sín Lyfseðilsgátt heilsuveru og Hekla-heilbrigðisnet liggja nú niðri og hafa gert það síðan um klukkan 13 í dag. 27.11.2019 17:27
Segir kostnaðarsamara fyrir Kínverja að ráðast inn í Hong Kong en að leyfa borginni að brenna "Þeir hafa lært það í gegn um tíðina hvað gerist þegar þú sendir inn hermenn og skriðdreka, við sáum það á torgi Hins himneska friðar árið 1989. Þá var Kína allt öðruvísi land en það er í dag. Kína hefur vissulega, þó að stjórnvöld í Peking séu mjög hörð á svona hlutum, þá myndu þeir bara hafa miklu meiru að tapa núna á þessum tíma en áður fyrr.“ 25.11.2019 23:30
Sigríður Halldórsdóttir nýr aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra Sigríður Halldórsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra. 25.11.2019 23:24
Áströlsk móðir ákærð fyrir morð fyrir að skilja dætur sínar eftir í bíl Áströlsk móðir hefur verið ákærð fyrir morð eftir að tvö börn hennar fundust látin í bíl í steikjandi hita. 25.11.2019 23:15
Manni haldið í einangrun vegna gruns um ítrekað heimilisofbeldi Landsréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni sem grunaður er að hafa beitt eiginkonu sína grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á heimili þeirra fyrr í þessum mánuði. 25.11.2019 22:46
Yfirlögregluþjónn vill auka löggæslu til að sporna gegn hraðakstri Töluverðar fjárhæðir tapast ár hvert vegna óborgaðra hraðasekta. Ítrekað kemur upp sú staða að erlendir ferðamenn fái háar fjársektir fyrir of háan akstur, sem kemst upp um í gegn um hraðamyndavélar, en þær eru aldrei borgaðar. 25.11.2019 18:17