Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Annar hvalrekinn á nokkrum dögum

Jónas Welding Jónasson, íbúi á Stokkseyri, segist hafa frétt af hvalreka við afleggjara að Skipum í morgun. Hann og afastelpurnar hans hafi þá ákveðið að rölta að hvalnum í hádeginu.

Ekki er allt sem sýnist í Dimmu

Hljómsveitin Dimma segir fullyrðingar tónlistarmannsins Stefáns Jakobssonar, Stebba Jak, um að bassaleikarinn Silli Geirdal og eiginkona hans hafi sett sig upp á móti honum, vera ósannar. Þetta segir í færslu sem birt var í dag á Facebook-síðu hljómsveitarinnar Dimmu en Stefán hætti sem söngvari hljómsveitarinnar eftir fimmtán ára skeið nú í vikunni.

Full­komin lending eftir sögu­lega ferð

Geimfarar Artemis II eru komnir heilir á húfi aftur til jarðar eftir „fullkomna lendingu“ og hafa þar með lokið sinni sögulegu 10 daga geimferð. Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jermey Hansen lögðu af stað þann 1. apríl út í geim og er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1972 sem menn eru sendir til tunglsins.

Ók á tæp­lega tvö­földum leyfi­legum hraða

Lögregla var kölluð til á skemmtistað í umdæmi þrjú, sem þjónustar Kópavog og Breiðholt, vegna líkamsárásar. Í umdæum eitt og tvö voru alls níu handteknir vegna gruns um ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Sjö ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur.

Út­lit fyrir vor­veður á næstu dögum

Hiti mun ná allt að níu stigum næstu daga en í dag nálgast víðáttumikil og djúp lægð landið úr suðaustri og því má búast við vaxandi norðaustanátt fram eftir degi. Mjög hvasst verður í Öræfum um tíma í kvöld og geta hviður farið upp í allt að 35 m/s.

Engir glæpir á bak við aukið sí­renu­væl í borginni

Fjölmargir hafa eflaust orðið varir við aukið sírenuvæl undanfarna daga á höfuðborgarsvæðinu. Það á sér þó mjög hversdagslegar skýringar en yfir standa æfingar í forgangsakstri hjá lögreglunemum. Sjái fólk lögreglubíla á fleygiferð um borgina sé því ekki ólíklegt að þeir séu á æfingu frekar en á leið í útkall.

Guðmundarlundur á bóla­kafi

Útivistarsvæðið Guðmundarlundur í Kópavogi minnir frekar á stöðuvatn en útivistarsvæði eftir storma og tilheyrandi leysingar. Framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Kópavogs segir vatnshæðina hafa náð tæplega metra þegar mest var. Allt horfi til betri vegar og skipulagðar fermingarveislur um helgina fari fram.

Sau­tján þúsund miðar seldir á Kaleo

Nánast uppselt er á stórtónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Í tilkynningu sem Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari sendi frá sér kemur fram að af þeim tuttugu þúsund miðum sem séu í boði hafi sautján þúsund þegar verið seldir.

Sjá meira