Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Freyja Þórisdóttir skrifar 30. september 2026 15:36 Halla Gunnarsdóttir formaður VR er meðal þeirra sem setja út á málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra. Vísir/Anton Brink VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali sem birt var fyrr í dag, miðvikudaginn 30. september, á Vísi. Þau segja málflutning ráðherrans ríma illa við þá stöðu sem blasi við launafólki og að hann vinni gegn því.
Kemur þetta fram í tilkynningu en í henni segir einnig að í viðtalinu hafi ráðherrann lýst gagnrýni á skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar sem kröfu um „skammtímaábata“ á kostnað langtímahagsmuna samfélagsins. Heimili landsins hafi undanfarin ár glímt við mikla verðbólgu, háa vexti og ört vaxandi húsnæðiskostnað. Flest launafólk hafi á sama tíma fengið launahækkanir sem hafi ekki haldið í við verðlag. Svart á hvítu „Fjármálaráðherra viðurkennir sjálfur að hóflegir kjarasamningar ársins 2024 hafi ekki skilað þeirri hjöðnun verðbólgu sem stefnt var að. Þrátt fyrir það ætlar ríkisstjórnin að hækka gjöld ríkisins um 5,2 prósent, langt umfram 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans, og ráðherrann segir slíkar hækkanir meðal annars eiga að stuðla að því að kæla hagkerfið,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Þar skrifa þau sömuleiðis að þetta megi einnig útskýra með öðrum orðum svona: „Stjórnvöld kalla eftir aðhaldi en hækka sjálf skatta og gjöld. Þau sækja auknar tekjur í vasa almennings og leggja þannig sitt af mörkum til verðbólgunnar, á sama tíma og fyrirtækin eru látin óáreitt,“ og áfram: „Nýjasta verðbólgumælingin sýnir svart á hvítu að vöruverð hefur hækkað þrátt fyrir hraða styrkingu krónunnar, þvert á það sem eðlilegt mætti teljast. Þar vegur ákvörðun fjármálaráðherrans um að hækka aftur virðisaukaskatt á eldsneyti þungt.“ Standi við sinn hluta VR, LÍV og fagfélögin hafi ekki kallað eftir skammtímaábata. Þvert á móti hafi markmiðið verið að skapa forsendur fyrir því að langtímakjarasamningar geti haldið. Að stilla þeirri kröfu upp sem sérhagsmunagæslu sé ómaklegt. Það sem launafólk fari fram á sé einfaldlega að kaupmáttur þess verði varinn og að stjórnvöld standi við sinn hluta þess samfélagslega samkomulags sem kjarasamningarnir hafi byggt á. Ráðherrann segir jafnframt að lausnin við verðbólgunni verði „alltaf pínu sársaukafull“ og að ef eitthvert ríki eigi að geta þolað slíkan sársauka sé það Ísland. „En það er ekki „Ísland“ sem greiðir reikninginn. Það er fólk. Það eru heimilin sem greiða hærri vexti, hærri skatta og hærri gjöld. Það er launafólk, íslensk heimili, sem horfa upp á kaupmáttinn rýrna,“ segir í tilkynningunni. Það sé ekki boðlegt að fjármálaráðherra tali með þessum hætti um stöðu fólks sem árum saman hafi borið þungar byrðar af verðbólgu og háum vöxtum á sama tíma og ríkisstjórnin bæti sjálf í þær byrðar. Fjármálaráðherra á að gæta almannahagsmuna en ekki vinna gegn fólkinu. VR, LÍV og Fagfélögin krefjist þess að ríkisstjórnin sýni í verki að hún ætli að standa með heimilum landsins og leggja sitt af mörkum til þess að forsendur kjarasamninga geti haldið. Það verði ekki gert með því að hækka álögur og saka síðan þá sem mótmæla um að setja eigin skammtímahagsmuni framar hagsmunum samfélagsins.
Fjármál heimilisins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Efnahagsmál Stéttarfélög Vinnumarkaður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira