Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Aldrei of seint að gera hlutina“

Tónlistarhjónin Regína Ósk og Svenni Þór eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í dansi en undanfarin misseri hafa þau einnig tekið til hendinni heima fyrir. Þar á meðal settu þau upp lítinn kaldan pott á pallinn og smíðuðu sér útisánu úr bjálkakofa. Vala Matt kíkti í heimsókn til þeirra hjóna í Kópavoginn í nýjasta þætti af Ísland í dag.

Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir

Landsréttur hefur dæmt frjósemismiðstöðina Livio til þess að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum tuttugu og fimm milljónir króna í skaðabætur. Ingunn Jónsdóttir stefndi Livio fyrir að hafa sagt henni upp störfum á ólögmætan hátt.

Turninn á Lækjar­torgi fær nýtt líf

Söluturninn á Lækjartorgi fær nýtt líf í næstu viku en til stendur að opna þar ísbúðina Ísfabrikkuna. Nýir eigendur stefna á að framleiða og selja „fyrsta flokks ís úr alvöru hráefnum“ en einnig verður boðið upp á kaffi til sölu.

Hefja söfnun fyrir fjöl­skyldu Ingu Daggar

Söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi í lok apríl hefur verið hrundið af stað og einnig hefur verið búin til styrktarsíða á Facebook. Hún var aðeins 44 ára gömul þegar hún lést og skilur eftir sig eiginmann og tvo unga syni.

Manst þú eftir þessum sí­gildu sumarleikjum?

Nú þegar sumarið er brostið á og flestöll börn komin í sumarfrí eru eflaust margir að velta fyrir sér hvað skal finna sér til dægrastyttingar. Þá eru fjölmörg námskeið í boði og afþreying svo sem leikhús og bíó en Jón Axel Ólafsson, fjölmiðla- og athafnamaður, tók saman lista yfir leiki sem eru margir hverjir landsmönnum ylhýrir en aðrir sem hafa mögulega fallið í gleymskunnar dá.

„Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“

„Við þurfum átta knús á dag fyrir viðhald og tólf knús á dag fyrir vöxt“, segir Jökull Þór Ellertsson útskriftarnemi af Vöruhönnunarbraut Listaháshóla Íslands. Hann vann nýverið lokaverkefnið Ég elska elska sem að hans sögn var hugsað sem mótefni fyrir samfélagið á tímum þar sem hið mannlega sé að dofna.

Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu

Kerfisvilla varð til þess að verðmerkingar í hillum verslana Samkaupa, sem eru meðal annars Nettó og Prís, sýndu rangar upphæðir í gær, þriðjudaginn 2. júní. Mistökin uppgötvuðust í bítið í gær og var strax hafist handa við að leiðrétta þau.

Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni

Bandaríska söngkonan Sabrina Carpenter hefur farið fram á nálgunarbann gegn manni sem hún segir hafa birst við heimili hennar innan við sólarhring eftir að hafa verið handtekinn. Hann hafði reynt að þröngva sér inn um dyr heimilis hennar og þóst þekkja hana.

Flug­menn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið

Enn einni flugferð Icelandair var aflýst í morgun þar sem flugmenn fengust ekki á vaktina. Ferðin átti að vera til Zurich í Sviss en frá því að kjaradeilu félagsins og flugmanna þess var vísað til ríkissáttasemjara í upphafi mánaðar hefur alls tuttugu brottförum frá Keflavík verið aflýst, eða samanlagt fjörutíu ferðum til og frá landinu.

Sjá meira